

Skýrt hlutverk
Hanna Birna heldur því fram í fréttum um helgina að borgarkerfið sé að þenjast út. Ekkert er jafn fjarri sannleikanum. Hún misskilur eitthvað þar. Veit hún ekki betur eða er hún kannski að misskilja viljandi? Er hún búin að gleyma því að árið 2007 lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram eins tillögu um stofnun embættis borgarritara?
Kostnaður við skrifstofu borgarstjóra hefur ekki aukist eins og hún heldur líka fram í sama viðtali. Hann hefur þvert á móti lækkað umtalsvert eins og Hönnu Birnu á að vera vel kunnugt um. Þar hefur starfsfólki fækkað og rekstrarkostnaður lækkað.
Ekkert er á reiki varðandi verkefni borgarstjóra. Ég mun áfram verða æðsti embættismaður borgarinnar og þeirra sviða sem Reykjavíkurborg rekur. Reyndar eru sviðin orðin færri núna. Menntasvið, leikskólasvið og frístundahluti ÍTR sameinuðust í nýtt skóla- og frístundasvið sem tók til starfa nú í vikunni.
Skrifstofustjóri borgarstjóra hefur haft yfirumsjón með því verkefni og embætti borgarritara á einmitt að skoða og gera tillögur um hvernig hægt er að fara í enn frekari sameiningar skrifstofa og gera miðlæga stjórnsýslu borgarinnar einfaldari, skilvirkari og hagkvæmari. Þetta á að vera stöðugt verkefni í rekstri borgarinnar.
Borgarritari verður staðgengill borgarstjóra. Það er ekkert nýtt. Borgarstjóri hefur alltaf haft staðgengil. Slíkur staðgengill hefur heitið skrifstofustjóri borgarstjóra og hann hefur einnig verið kallaður borgarritari. Stundum hefur borgarlögmaður jafnvel verið staðgengill borgarstjóra. Þegar Hanna Birna var sjálf borgarstjóri og brá sér til útlanda var skrifstofustjóri borgarstjórnar jafnan staðgengill hennar.
Staðgengill borgarstjóra leysir hann ekki af í vinnunni dags daglega eins og Hanna Birna heldur fram. Hér er um að ræða nauðsynlegan hlut í stjórnsýslu þar sem staðgengill verður að vera til staðar ef, í þessu tilviki borgarstjóri, er af einhverjum orsökum fjarverandi. Hlutverkin eru mjög skýr. Staða borgarritara er mjög spennandi, krefjandi og lifandi starf. Vil ég nota þetta tækifæri til þess að hvetja sem flesta sem telja sig hæfa til að gegna embættinu til að sækja um stöðuna. Umsóknarfrestur rennur út 26. september næstkomandi.
Skoðun

Hagsmunir heildarinnar - Kafli tvö: Eiskrandi kröfur
Hannes Örn Blandon skrifar

Palestína er að verja sig, ekki öfugt
Stefán Guðbrandsson skrifar

Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza
Birgir Finnsson skrifar

Lýðræði á ystu nöf: Hver er afstaða unga fólksins?
Jonas Hammer skrifar

Hvað ef ég hjóla bara í vinnuna?
Eiríkur Búi Halldórsson skrifar

Litlu ljósin á Gaza
Guðbrandur Einarsson skrifar

Ekki leiðrétting heldur skattahækkun: Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Staðreyndir eða „mér finnst“
Birta Karen Tryggvadóttir skrifar

Fjármagna áfram hernað Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Frídagar í klemmu
Jón Júlíus Karlsson skrifar

Fasteignaviðskipti – tímabært að endurskoða leikreglurnar?
Hlynur Júlísson skrifar

Í skugga kerfis sem brást!
Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar

Jöfn vernd fyrir öll börn í veröldinni
Gunnar Hersveinn skrifar

Helför Palestínumanna í beinni útsendingu – viljum við vera samsek?
Ólafur Ingólfsson skrifar

Byggð í Norðvesturkjördæmi: lífæð framtíðar Íslands
Ragnar Rögnvaldsson skrifar

Hverju hef ég stjórn á?
Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar

Metnaður eða metnaðarleysi?
Sumarrós Sigurðardóttir skrifar

„Þetta er allt í vinnslu“
María Pétursdóttir skrifar

Arðsemi og tilgangur - eitt útilokar ekki annað
Elva Rakel Jónsdóttir,Erla Ósk Ásgeirsdottir skrifar

Iðnaðarstefna – stökkpallur inn í næsta hagvaxtarskeið
Sigurður Hannesson skrifar

Hættum að bregðast íslensku hryssunni
Rósa Líf Darradóttir skrifar

Börnin bíða meðan lausnin stendur auð
Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Áður en það verður of seint
María Rut Kristinsdóttir skrifar

Lygin lekur niður á hökuna
Jón Daníelsson skrifar

Líflínan
Ingibjörg Isaksen skrifar

Ríkisfyrirtæki sem virðir ekki æðsta valdið
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Neikvæðni í garð sjávarútvegs á Íslandi – orsakir og afleiðingar
Kristín Þórarinsdóttir skrifar

Við erum hafið
Guillaume Bazard skrifar

Deja Vu
Sverrir Agnarsson skrifar

Mun mannkynið lifa af gervigreindina?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar