Klukkan átta í morgun fengum við hjá Veiðivísi símtal frá veiðimenni sem var ofan í skurði og vildi koma því á framfæri að það væri allt fullt af gæs fyrir norðan í Skagafirðinum.
Þeir voru komnir með 28 fugla á rétt rúmum klukkutíma og sögðu að það væri stanslaust flug í túnið þar sem þair voru búnir að koma sér fyrir. Þetta eru mjög vanir menn og þekkja vel til á þessu svæði. Aðrar skyttur sem voru búnar að koma sér fyrir á túni utar í sveitinni voru ekki að fá mikið af fugli á sig.
Þess má geta að í miðju samtali þurftu viðmælandi okkar að leggja frá sér símann því það var hópur að koma í gervigæsirnar. Eftir nokkra hvelli fengum við veiðimanninn aftur í símann með þeim fréttum að 7 gæsir hefðu verið teknar í þessu flugi. Við fáum myndir frá þessum mönnum seinna í dag.
