Laxveiðisumarið var mjög gott í Fnjóská, en að sögn Ingvars Karls Þorsteinssonar hjá Flúðum eru skráðir laxar að minnsta kosti 650 talsins. Þetta kemur fram í Flugufréttum Flugur.is í dag.
Þar kemur jafnframt fram að meðalþungi hafi verið með ágætum eða um fjögur kíló. Ekki urðu neinar sérstakar aflahrotur í Fnjóská í sumar, veiðin var jöfn og góð, sem líklegast má rekja til þess að áin var mjög vatnsmikil langt fram eftir sumri með leysingavatni.
Stærsti laxinn í sumar er áætlaður um 18 pund eða 95 sm. Þess má geta að um er að ræða annað besta laxveiðisumarið í Fnjóská en í fyrra var metveiði þegar að áin skilaði rúmlega 1050 löxum. Talsvert hefur borið á smærri geldbleikju í Fnjóská nú á haustdögum, eitthvað sem ekki hefur sést í nokkuð mörg ár.
Birt með góðfúslegu leyfi SVFR

