Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í dag. Hann varð 0.427 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bull var með þriðja besta tíma og var 0.451 á eftir Hamilton.
Vettel vann mótið í fyrra Abú Dabí og vann einnig fyrsta mótið sem fór fram á brautinni árið 2009. Tímatakan fyrir kappakstursmótið í Abú Dabí fer fram í dag. Vettel hefur 13 sinnum verið fljótastur í tímatökum á keppnistímabilinu, en Webber hefur þrívegis náð besta tíma á árinu í tímatöku og Hamilton í eitt skipti.
Ef Vettel nær besta tíma í tímatökunn í dag, þá jafnar hann árangur Nigel Mansell frá árinu 1992, en Mansel náði þá fjórán sinnum besta tíma í tímatöku á sama keppnistímabilli.
Bein útsending verður frá tímatökunni í Abú Dabí í dag á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 12.45.
Tímarnir af autosport.com
1. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m38.976s
2. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m39.403s + 0.427s
3. Mark Webber Red Bull-Renault 1m39.427s + 0.451s
4. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m39.429s + 0.453s
5. Fernando Alonso Ferrari 1m39.661s + 0.685s
6. Nico Rosberg Mercedes 1m40.135s + 1.159s
7. Felipe Massa Ferrari 1m40.183s + 1.207s
8. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m40.429s + 1.453s
9. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m40.511s + 1.535s
10. Michael Schumacher Mercedes 1m40.938s + 1.962s
11. Bruno Senna Renault 1m41.509s + 2.533s
12. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m41.527s + 2.551s
13. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m41.566s + 2.590s
14. Vitaly Petrov Renault 1m41.594s + 2.618s
15. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m41.622s + 2.646s
16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m41.855s + 2.879s
17. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m42.025s + 3.049s
18. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m43.409s + 4.433s
19. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m43.861s + 4.885s
20. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m45.262s + 6.286s
21. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m45.302s + 6.326s
22. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m45.509s + 6.533s
23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m45.732s + 6.756s
24. Jarno Trulli Lotus-Renault engin tími
