Lífið

Hárdoktorinn kveður Ísland

Jón Atli Helgason flytur búferlum til Danmerkur í byrjun næstu viku. Þar mun hann sinna tónlist og plötusnúðamennsku.fréttablaðið/vilhelm
Jón Atli Helgason flytur búferlum til Danmerkur í byrjun næstu viku. Þar mun hann sinna tónlist og plötusnúðamennsku.fréttablaðið/vilhelm

Plötusnúðurinn Jón Atli Helgason flytur til Danmerkur í byrjun næstu viku. Þar mun hann meðal annars starfa sem plötusnúður ásamt því að spila á bassa inn á plötu með danska plötusnúðnum Kasper Björke.

Jón Atli hyggst dvelja í Danmörku í það minnsta fram á sumar en telur ekki ólíklegt að hann verði lengur en það. Aðspurður segist hann spenntur fyrir flutningunum og þeim verkefnum sem bíða hans. „Ég er búinn að fá alveg nóg," segir hann og slær á létta strengi. „Nei, ástæðan fyrir því að ég er að fara er sú að mig langar að geta sinnt tónlistinni betur. Mér finnst svo gaman að vinna sem plötusnúður en hér heima eru voðalega fáir staðir til að spila á ef maður spilar „house"-tónlist. Það er mun auðveldara að koma sér á framfæri og redda sér verkefnum úti heldur en hér," útskýrir hann.

Jón Atli kemur fram undir sviðs­nafninu Sexy Lazer þegar hann þeytir skífum og hefur þegar bókað þó nokkur verkefni bæði í Kaupmannahöfn og víðar. „Ég hef tekið að mér verkefni tengd tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem hefst í næstu viku og svo mun ég spila á karnivali í Köln í mars. Ég ætla líka að halda eitthvað áfram að klippa hár og mögulega hanna kaffihús þannig að maður er ekki verkefnalaus," segir Jón Atli, sem hefur verið einn vinsælasti klippari landsins undanfarin ár.

Jón Atli segist ekki vera búinn að pakka fyrir ferðina og viðurkennir að hann kvíði því helst að þurfa að tæma fataskápinn. „Systir mín verður í íbúðinni á meðan ég er í burtu, sem er mjög þægilegt. Ég þarf ekki einu sinni að hafa fyrir því að taka fjölskyldumyndirnar niður af veggnum. Erfiðasta verkefnið verður að velja úr fataskápnum," segir hann að lokum og hlær.

sara@frettabladid.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×