Eigendur Kaupangs, sem rak Bókabúð Máls og menningar (BMM) við Laugaveg, létu verslunina greiða tæplega tvöfalt hærri húsaleigu en Penninn-Eymundsson greiddi er hann rak þar verslun. Sjálfir áttu þeir húsnæðið sem bókabúðin leigði.
Húsaleiga BMM nam 3,4 milljónum króna á mánuði undir lok árs 2009, samkvæmt ársreikningi verslunarinnar. Þetta er 30 til 35 prósenta hærra leiguverð en í sambærilegu verslunarrými í nágrenni bókabúðarinnar við Laugaveg, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.
Starfsfólki BMM var tilkynnt fyrir viku að hún væri farin í þrot og var dyrum hennar skellt í lás.
Kaupangur keypti húsið sem verslunin var í árið 2007. Á sama tíma átti Penninn-Eymundsson rekstur bókabúðarinnar. Penninn varð gjaldþrota snemma árs 2009 og tók Nýja Kaupþing, nú Arion banki, reksturinn yfir.
Forsvarsmenn Kaupangs vildu í kjölfarið hækka leigu bókaverslunarinnar úr um 1,8 milljónum króna í 3,4 milljónir, eða um tæp hundrað prósent. Eftir því sem næst verður komist voru rökin þau að hátt verð hefði verið greitt fyrir fasteignina og yrði Kaupangur því að krefjast hárrar húsaleigu.
Samningar náðust ekki og lauk samstarfi Pennans og Kaupangs með því að Arion banki flutti rekstur verslunarinnar upp á Skólavörðustíg. Flest starfsfólk fór sömu leið. Þrátt fyrir þetta ákváðu þeir Jóhannes Sigurðsson og Bjarki Júlíusson, eigendur Kaupangs, að halda rekstri bókaverslunarinnar áfram.
Viðmælendur Fréttablaðsins sem reka verslanir við Laugaveg, úr röðum fyrrverandi starfsfólks BMM og Pennans-Eymundsson sem komu að samningum um leiguverðið á sínum tíma segja erfitt að reka verslun með svo hárri húsaleigu. Það skýri að stórum hluta ástæðu þess að verslunin fór í þrot.
Jóhannes Sigurðsson, stjórnarformaður BMM, vildi ekki tjá sig um leiguverðið við blaðið.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins telja einhverjir birgjar BMM að semja hefði átt við þá áður en verslunin fór í þrot og íhuga málshöfðun. Jóhannes segir að reynt verði að lágmarka tap birgja.- jab
Bóksalar borguðu sjálfum sér nær tvöfalda húsaleigu

Mest lesið

Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið
Viðskipti innlent


Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun
Viðskipti innlent

Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist
Viðskipti innlent

Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna
Viðskipti innlent


Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum
Viðskipti erlent

Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent
Viðskipti innlent

Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni
Viðskipti innlent