Lífið

Ensími með útgáfutónleika

ensími Útgáfutónleikar Ensími verða haldnir á Nasa á laugardagskvöld.
fréttablaðið/arnþór
ensími Útgáfutónleikar Ensími verða haldnir á Nasa á laugardagskvöld. fréttablaðið/arnþór
Ensími heldur útgáfutónleika á Nasa á laugardagskvöld til að fylgja eftir sinni fjórðu plötu, Gæludýr, sem kom út fyrir síðustu jól. Hljómsveitin ætlar að leggja mikinn metnað í hljóð- og ljósavinnslu þessa kvöldstund.

Sveitin hefur verið í tónleikaferð um landið að undanförnu og spilar til að mynda í Reykjanesbæ í kvöld og á Akranesi annað kvöld. Hún ætti því að vera vel þétt og í góðu formi þegar útgáfutónleikarnir verða háðir.

Upphitun verður í höndum rokkaranna í Agent Fresco, sem gáfu einnig út plötu fyrir síðustu jól.

Platan Gæludýr og stuttermabolir merktir Ensími verða til sölu á tónleikunum á Nasa, sem hefjast klukkan 23. Húsið verður opnað klukkutíma fyrr. Miðaverð er 1.000 krónur í forsölu á Midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×