Fjörug frumsýningarhelgi 24. febrúar 2011 12:00 Bieber og hryllingur Justin Bieber syngur sig inn í hug og hjörtu kvikmyndahúsagesta á meðan Anthony Hopkins reynir að hræða líftóruna úr eldra fólkinu í The Rite.
asdfasdfasdf Íslenskir kvikmyndahúsagestir þurfa ekki að kvarta undan skorti á fjölbreytileika í íslenskum kvikmyndahúsum. Háskólabíó sýnir gamlar og góðar á mánudögum, í Bíó Paradís er hægt að sjá klassíkina á hvíta tjaldinu og stóru kvikmyndahúsin frumsýna fjórar en ákaflega ólíkar kvikmyndir um helgina. Fyrst ber að nefna kvikmyndina Never Say Never sem fjallar um popptröllið Justin Bieber, þennan sextán ára strák frá Kanada sem trúir á Guð, er á móti fóstureyðingum og hefur sigrað heiminn. Á meðan ungviðið dillar sér í takt við sykraða tóna Biebers hræðir Anthony Hopkins líftóruna úr eldra liðinu í kvikmyndinni The Rite. Breski Óskarsverðlaunahafinn með bandaríska ríkisborgararéttinn fær í myndinni að kljást við kunnuglegt stef úr hryllingsmyndum, nefnilega djöfulinn og andsetið fólk. Yngsta kynslóðin hefur það síðan bara huggulegt í einum af hliðarsölunum og nýtur þess að horfa á Space Chimps 2 eða Geimapa. Myndinni er leikstýrt af John H. Williams sem framleiddi allar Shrek-myndirnar. Deitmynd helgarinnar er loks How Do You Know eftir meistara James L. Brooks þar sem stórstjörnurnar Reese Witherspoon, Owen Wilson og Jack Nicholson fara með helstu hlutverkin. Þótt sorglegt sé fær myndin samt einungis 5,3 á imdb.com.
Lífið Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira