„Högni er æðislegur. Hann er rosalega hæfileikaríkur og hann sem listamaður hefur rosalega mikið vald á þessu hljóðfæri sínu sem er röddin hans," segir Biggi veira úr GusGus. „Þetta eru geðveik lög sem hann er að syngja á þessari plötu og þau verða uppáhaldslög margra, ég get lofað því."
Samstarfið varð til eftir að Högni fór til Færeyja með Daníel Ágústi og Stephani Stephensen þar sem GusGus-meðlimirnir áttu að halda tónleika. „Þeir áttu aukamiða og spurðu hvort hann vildi ekki koma í partí," segir Biggi. Hjaltalín, GusGus og Ný dönsk hafa áður unnið saman að laginu Þriggja daga vakt sem kom út síðasta sumar.
Lögin þrjú þar sem Högni kemur við sögu samdi hann í samstarfi við GusGus. „Þetta var mjög skemmtilegt. Þetta eru svo fínir strákar. Það er svo létt að láta sér líða vel með þeim," segir Högni, sem er staddur á tónleikaferð erlendis með Hjaltalín. Hann hefur lítið komið nálægt danstónlist á ferli sínum og segir þessa nýjung hafa verið virkilega frískandi.

„Ég held að það sé óhætt að segja að þetta séu skemmtilegustu söngvararnir ef þú horfir á tilfinningalega framsetningu. Það er svo rosalega mikil sál í þeim öllum þremur og þau eru öll þrjú svo djúp í sinni túlkun. Það hentar vel í þessu elektróníska umhverfi."
Fyrsta lagið á Arabian Horse nefnist Selfoss og er skírt í höfuðið á uppáhaldssveitarfélagi þeirra GusGus-liða á Suðurlandi. Undirbúningur fyrir plötuna hófst einmitt í sumarbústað í Grímsnesi þar sem grunnurinn var lagður og taktarnir ákveðnir.
Á meðal gestaspilara á gripnum eru Samúel J. Samúelsson og Davíð Þór Jónsson sem spilar á harmóníku og banjó.
freyr@frettabladid.is
