Urðu að standa úr stólum sínum 29. mars 2011 06:00 forstjóri FME 47 stjórnarmenn fóru í hæfnismat hjá Fjármálaeftirlitinu. Einn fór tvisvar en féll í bæði skiptin. Fréttablaðið/PJEtur
Einn féll í tvígang í mati Fjármálaeftirlitsins (FME) á hæfi til að sitja í stjórn fjármálafyrirtækja, eignarhaldsfélaga og vátryggingafélaga. Þar á meðal eru stjórnir bankanna. Tólf þurftu að endurtaka matið og ákváðu þrír að endurtaka það ekki. Þetta kemur fram í umfjöllun FME á niðurstöðum hæfnismatsins. Matið náði til 47 stjórnarmanna og stóðust 35 þeirra fyrstu atrennu. Níu stjórnarmenn sögðu starfi sínu lausu og mættu þeir ekki í matið. Líklegt er talið að þeir þrír sem ekki mættu í endurtekið mat og sá sem féll í tvígang hafi þurft að segja sig úr þeim stjórnum sem þeir áttu sæti í. FME stofnaði sérstaka ráðgjafanefnd í janúar í fyrra sem sér um hæfnismatið. Það byggir á ítarlegu viðtali við stjórnarmenn þar sem farið er yfir þekkingu þeirra, skilning á ábyrgð þeirra og hlutverki sem stjórnarmenn, og viðhorf almennt. Nefndin veitir umsögn um hæfi stjórnarmanna og er hún höfð til hliðsjónar við ákvörðun FME um hæfið. Ekki er um tilmæli að ræða, samkvæmt upplýsingum frá FME. Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, er formaður nefndarinnar. Hann vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær og vísaði hann á Gunnar Andersen, forstjóra FME: Ekki náðist í Gunnar þegar eftir því var leitað í gær. - jab
Fréttir Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira