
Líbía og stuðningur Íslands
Þríþættar aðgerðirÁ ríkjaráðstefnunni voru samþykktar þrennskonar aðgerðir. Í fyrsta lagi að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um loftferðabann, viðskipta- og vopnasölubann og vernd óbreyttra borgara. Atlantshafsbandalagið hefur fallist á óskir ýmissa smærri ríkja að taka að sér samræmingu þessa þáttar. Í öðru lagi að tryggja tafarlaust mannúðaraðstoð sem nú sárvantar í borgum þar sem átök geisuðu. Sammæli var um að alþjóðlegar hjálparstofnanir stýrðu þessum lið. Í þriðja lagi að styðja líbísku þjóðina við uppbyggingu nauðsynlegra innviða til að byggja eigin framtíð með lýðræðislegum stjórnarháttum. Á blóði drifnum ferli upprætti harðstjórinn pólitíska flokka, fangelsaði, hrakti í útlegð eða drap pólitíska leiðtoga. Framkvæmdastjóra SÞ var falið að hafa umsjón með uppbyggingu pólitískra grunnstofnana svo tryggja megi frjálsar kosningar.
Lagalegt umboð til aðgerðaÞessar aðgerðir hvíla á skýru lögmætu umboði sem felst í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1973. Hún var samþykkt 18. mars af 10 ríkjum, enginn beitti neitunarvaldi en fimm sátu hjá. Ályktunin gengur mun lengra en sem nemur loftferðabanni eingöngu. Hún veitir heimild til hernaðaraðgerða til að fylgja eftir lokun lofthelgi. Í ályktuninni er einnig mikilvægt ákvæði um vernd óbreyttra borgara sem slær í gadda að ályktunin veitir ekki umboð til að koma upp erlendu hernámsliði í Líbíu.
Hótanir um hrannmorðÍ ljósi ofangreinds hafa því loftárásir samstarfsríkjanna – og nú Nató – ekki síst miðað að eyðileggingu loftvarnarkerfa Gaddafís. Ályktunin leyfir hins vegar víðtækari loftárásir á hernaðarleg skotmörk ógni þau líbískum almenningi. Markmið hennar er að bjarga mannslífum sem voru í mikilli hættu. Sá háski speglaðist í yfirlýsingum harðstjórans þegar hann kvaðst í aðdraganda atlögunnar að Benghazi ekki myndu sýna neinum miskunn og engu eira. Ban Ki-moon framkvæmdastjóri SÞ telur þessar aðgerðir hafa bjargað þúsundum mannslífa.
Tífaldur styrkleikamunurÍ kjölfarið hefur verið deilt um hvort ályktunin heimili að senda uppreisnarmönnum vopn. Þá er vísað til þess að þó skotfæri beggja séu farin að ganga til þurrðar er munurinn á herstyrk þeirra tífaldur Gaddafí í vil. Möguleikinn á endurnýjun vopnabirgða er sömuleiðis mikill. Uppreisnarmenn eiga enga fjársjóði en þó eignir Gaddafís hafi verið frystar sýna skrár AGS að líbíska stjórnin á 144 tonn af gulli í landinu.
Valdamikil ríki einsog Bretland, Bandaríkin, og jafnvel Frakkar, hafa því rætt opinskátt um að vopna beri uppreisnarmennina til að gefa þeim færi á jafnstöðu um bardagagögn. Hófstillingin af hálfu Nató, og skilyrðislaus hlýðni við lögmætt umboð öryggisráðsins, speglast hins vegar í því að framkvæmdastjóri bandalagsins hefur hafnað afdráttarlaust þeirri túlkun að ályktun 1973 veiti heimild til að vopna uppreisnarmenn.
Blóðsúthellingum afstýrtViðbrögð SÞ við atburðum í Líbíu hafa undirstrikað hvers alþjóðasamfélagið er megnugt, taki ríki höndum saman um aðgerðir til verndar friði og mannréttindum. Þótt uppreisnaröflum hafi ekki enn tekist að velta Gaddafí úr sessi hefur frekari blóðsúthellingum meðal óbreyttra borgara verið afstýrt að sinni. Hjálparstofnunum er gert kleift að koma aðstoð til nauðstaddra. Í fyrsta skipti í langan tíma hafa helstu stofnanir alþjóðasamfélagsins unnið saman eins og til var ætlast og Sameinuðu þjóðirnar fyrir vikið verið styrktar í sessi.
Tvennt réði þar úrslitum: Annars vegar að samkomulag innan öryggisráðs SÞ um viðbrögð sem lagði lagalegan grunn að sameiginlegum aðgerðum. Hins vegar að ríki sem átt hafa nánust tengsl við Líbíu, bæði Arabaríkin og Afríkuríkin, sýndu vilja til að bregðast við án tafar.
Aðgerðir ÍslandsAllt frá því að ljóst var hversu grimmilega Gaddafí réðist gegn eigin borgurum hafa íslensk stjórnvöld fordæmt gjörðir hans og kallað eftir aðgerðum til að stöðva blóðsúthellingar og stríðsglæpi. Við höfum tekið undir harðorðar ályktanir öryggisráðsins; við studdum vopnasölubann á Líbíu, frystingu eigna Gaddafís og höfðum virkan atbeina að því að sakadómstóli SÞ hefur verið falið að rannsaka árásir öryggissveita Gaddafís á íbúa landsins. Við höfum lokið innleiðingu ályktunar öryggisráðsins um refsiaðgerðir gagnvart Líbíu. Þá var Ísland eitt þeirra ríkja sem stóðu að tillögu um að reka Líbíu úr mannréttindaráði SÞ.
Ísland hefur lagt 12 millj. kr. til matvælaaðstoðar og flóttamannahjálpar SÞ til að bæta stöðu almennings á átakasvæðunum. Okkur hefur hins vegar engin beiðni borist um neins konar framlag í tengslum við aðgerðir Nató gagnvart Líbíu.
Hlutverk AtlantshafsbandalagsinsÞegar geggjaður harðstjóri leggur til atlögu við vopnlausa borgara, og lýsir yfir að engin miskunn verði sýnd, á alþjóðasamfélagið engan kost annan en að grípa til aðgerða til að koma á friði. Ella ber það siðferðilega ábyrgð á hrannmorðum gegn saklausu fólki. Íslenskir þingmenn úr öllum flokkum voru sama sinnis.
Hver og einn einast þingmaður sem á Alþingi tók til máls í tveimur umræðum um málefni Líbíu studdi aðgerðir. Ríkisstjórnin samþykkti formlega stuðning við ályktun öryggisráðsins nr. 1973. Einstök ríki óskuðu eftir að Nató samræmdi aðgerðirnar og utanríkismálanefnd Alþingis var kynnt að umræður færu fram um það á vettvangi bandalagsins. Þátttaka þess rúmaðist vel innan lögmæts umboðs ályktunar öryggisráðsins. Innan bandalagsins gildir neitunarvald eins ríkis. Í ljósi ofangreinds var fastafulltrúa Íslands hjá bandalaginu heimilað að leggjast ekki gegn samstöðu ríkja um að það tæki að sér umbeðið hlutverk. Reynsla síðustu dægra hefur sýnt að það fylgir ályktun öryggisráðsins með varfærnari og hófstilltari hætti en einstök ríki.
Skoðun

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Gerist þetta aftur á morgun?
Ísak Hilmarsson skrifar

Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu?
Helen Ólafsdóttir skrifar

Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar
Jón Daníelsson skrifar

Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Fréttir af baggavélum og lömbum
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Auglýsingaskrum Landsvirkjunar
Stefán Georgsson skrifar

Öryggi og varnir Íslands
Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar

Takk Trump!
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar
Soffía Sigurðardóttir skrifar

Tími til að staldra við
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra?
Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar

25 metrar í Fannborg
Hákon Gunnarsson skrifar

Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína
Kristján Þór Sigurðsson skrifar

Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik
Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar

Frumvarp til ólaga
Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar

Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn
Örn Sigurðsson skrifar

„Drifkraftur að óöryggi og óvissu“
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Klerkaveldi, trú og stjórnmál
Sigurður Árni Þórðarson skrifar