Hráir fiskréttir eiga vel við á heitum sumardögum og eru fljótlegir í framkvæmd. Oddný Magnadóttir gefur lesendum uppskrift að sumarlegu "cheviche".
„Þennan rétt er frábært að borða á sumrin, bæði sem forrétt eða sem hluta af smáréttaborði. Ég bý hann gjarnan til þegar ég á von á vinkonum í heimsókn og býð þá upp á ískalt hvítvín með," segir Oddný Magnadóttir, veiðimaður og matgæðingur og eigandi verslunarinnar Veiðiflugna.
„Í þessa uppskrift má nota hvaða hvíta fisk sem er, bara að hann sé þéttur og góður, lúða á vel við og einnig rækjur og skelfiskur. Sjálf nota ég gjarnan glænýja ýsu."

500 g hvítur þéttur fiskur, til dæmis lúða eða brakandi fersk ýsa
safi úr 6 límónum
¼ bolli ólífuolía
1 skalotlaukur mjög fínt saxaður
½ rauð paprika söxuð í fína teninga
2 rauð chilli fræhreinsuð og söxuð mjög fínt
2 vel þroskaðir tómatar kjarnhreinsaðir og saxaðir fínt
1 lítil krukka smár kapers, hellið vökvanum frá
hrásykur
salt og pipar
ferskur koriander
Skerið fiskinn í frekar smáa bita og kreistið safa úr 6 límónum yfir.
Blandið restinni af hráefnunum, nema koriandernum, og veltið vel saman.
Geymið í ísskáp í 2-3 tíma.
Smakkið til með hrásykri, salti og pipar. Setjið í skál eða litlar skálar og dreifið ferskum koriander yfir.
Frábært sem léttur forréttur eða sem réttur á hlaðborði.