Þegar Tinni var brenndur á báli Sævar Helgi Bragason skrifar 11. ágúst 2011 06:00 Í bókinni Fangarnir í sólhofinu standa þeir Tinni, Kolbeinn kafteinn og prófessor Vandráður frammi fyrir því að verða brenndir á báli. Leiðtogi inkanna, sonur sólarinnar, leyfir þeim þó að velja daginn örlagaríka og taka þeir sér örlítinn umhugsunarfrest. Í fangelsinu finnur Tinni dagblað og segir syni sólarinnar svo að þeir hafi ákveðið að fórnin fari fram á afmælisdegi Kolbeins. Tinni lætur ekkert uppi um fyrirætlanir sínar og biður Kolbein að treysta sér. Svo rennur dagurinn upp. Tinni, Kolbeinn og Vandráður eru allir bundnir við bálköst þegar Tinni hefur skyndilega upp raust sína. Hann talar við sólguðinn og segir honum að hafna fórninni með því að hylja andlit sitt. Það verður sólmyrkvi. Tinni segir syni sólarinnar að hann láti sólina birtast á ný láti hann sig og vini sína lausa. Leiðtogi inkanna lofar því og sólin birtist á ný. Tinni hafði lesið í blaðinu að sólmyrkvi yrði á þessum degi á þessari stundu. Ef blaðið sem Tinni las hefði verið íslenskt hefðu ævintýri Tinna líklega ekki orðið fleiri. Þeir Tinni, Kolbeinn og Vandráður hefðu brunnið á bálinu. Fyrir skömmu huldi tunglið sólina að hluta frá Íslandi séð. Fæstir vissu af því. Fjölmiðlar virtust margir hverjir ekki hafa nokkurn áhuga á að segja nokkrum frá því. Sama dag og það gerðist voru tvær heilsíður í Fréttablaðinu lagðar undir slúðurfréttir. Það er jú miklu mikilvægara fyrir okkur að vita að Danni Minogue (eða var það Kylie?) var að skilja við manninn sinn. Svo er auðvitað hverjum manni nauðsynlegt að fylgjast með Pippu hvert fótmál eins og verstu eltihrellar. Mér hefur lengi blöskrað umfjöllun íslenskra fjölmiðla um vísindi. Reyndar er varla hægt að segja að þeir fjalli um vísindi. Fréttir af vísindum og vandaðar umfjallanir um vísindaleg málefni birtast sárasjaldan í prentmiðlum og ljósvakamiðlum en þá sjaldan að það gerist er því miður augljóst að vönduð vinnubrögð eru ekki alltaf í hávegum höfð. Auðvitað er samt ekki allt alslæmt. En sem betur fer er ljóstýra í myrkrinu. Á Rás 1 yfir vetrartímann er frábær vikulegur þáttur um vísindi og tækni í umsjá Péturs Halldórssonar, Tilraunaglasið. Í Útvarpi Sögu er Vísindaþátturinn á þriðjudögum. Í RÚV eru erlendir náttúru- og vísindaþættir næsta vikulega. En þá er það eiginlega upptalið. Annað slagið heyrist að vísu vísindaumfjöllun annars staðar og því ber auðvitað að fagna. Við búum í samfélagi vísinda og tækni. Við búum líka í samfélagi þar sem það er álitið allt í lagi að vita lítið sem ekkert um vísindi, þar sem fáfræðin er dyggð. Í þessu samfélagi virka fjölmiðlar líka einstaklega áhugalausir um vísindi og tækni þrátt fyrir að vísindin hafi að miklu leyti veitt okkur þau ótrúlegu lífsgæði sem við njótum daglega. Á Íslandi er skortur á vísinda- og tæknimenntuðu fólki. Íslensk hátæknifyrirtæki þurfa að leita út fyrir landsteinana til að ráða til sín vísindamenntað fólk. Við ætlum okkur svo að bæta úr því með því að skerða kennslu í náttúrufræðigreinum í grunnskólum eins og fram kemur í nýrri aðalnámskrá! Fyrir skömmu skrifaði Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, leiðara undir fyrirsögninni „Nördarnir eru framtíðin“. Það er sannarlega hárrétt hjá ritstjóranum enda leiða vísindi og tækni hagvöxt og framfarir. Í leiðaranum segir Ólafur: „Úr þessu verður ekki bætt nema gera átak í vísinda- og tæknimenntun og vekja áhuga ungs fólks á henni.“ Að vekja áhuga er einmitt lykilatriði. Ein af ástæðum þess að ungt fólk fær ekki áhuga á vísindum er svo til algjör skortur á góðri umfjöllun um vísindi í fjölmiðlum almennt. Til þess að efla vísindi og tækni á Íslandi þurfa margir að taka höndum saman: Vísindasamfélagið, skólayfirvöld og ekki síst fjölmiðlar. Sennilega er fyrirhöfnin minnst hjá þeim síðastnefndu. Því skora ég á ritstjóra Fréttablaðsins og ritstjóra annarra fjölmiðla að efla umfjöllun sína um vísindi. Ein frétt í viku væri skref í rétta átt. Ekki skortir plássið. Það mun skila okkur ómældum ávinningi til lengri tíma litið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sævar Helgi Bragason Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Skoðun Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira