
Ekkert gert við atgervisflótta
Beinn kostnaður við þessa neikvæðu þróun er gríðarlegur. Þarna er um að ræða mikið af fólki sem hefur verið byggt upp á kostnað samfélagsins og er að byrja að skila tekjum til samneyslunnar og halda uppi hagvexti.
Flóttinn kostar samfélagið milljarðaÍ skýrslu sem OECD gaf út á síðasta ári kemur fram að íslenskt samfélag eyðir að meðaltali einni milljón í hvern nemanda á hverju námsári. Samkvæmt þessari skýrslu kostar hver grunnskólagenginn námsmaður um 15 milljónir og háskólamenntaður einstaklingur kostar um 23 milljónir króna. Þrátt fyrir þennan kostnað þá sýna allar rannsóknir að fjárfesting í menntun þjóðarinnar skilar sér margfalt til baka í auknum skatttekjum.
Sé fjöldi brottfluttra settur í samhengi við beinan menntunarkostnað, kostnað við heilbrigðisþjónustu o.fl. þá má sjá að tap samfélagsins hleypur á tugum ef ekki hundruðum milljarða króna. Þá er ekki horft til þess að viðkomandi hefði, að loknu námi, skapað aukin umsvif í íslensku hagkerfi, borgað skatta og drifið áfram hagvöxt. Það er einnig áhyggjuefni að svo virðist vera sem meira af fjölskyldufólki sé nú að flytja af landi brott.
Ekki er óalgengt að annar hvor makinn fari í fyrstu utan og í framhaldinu fylgi fjölskyldan á eftir. Þeim mun lengur sem þetta ástand varir aukast líkurnar á að fjölskyldurnar flytji einnig og að fólk setjist varanlega að erlendis.
Stefna ríkisstjórnarinnar dýpkar kreppuna!Fyrir ári síðan ræddi forsætisráðherra um þennan vanda í umræðum á Alþingi. Þá sagði hún reyndar að full ástæða væri til að hafa áhyggjur af þróun mála. Forsætisráðherra sagði einnig að ríkisstjórnin hefði nýverið kynnt áætlun um aukna atvinnuuppbyggingu sem unnið væri eftir og að hún væri sannfærð um að það tækist að snúa þessari þróun við. Frá því þessi ummæli féllu eru liðnir 18 mánuðir. Þvert á spár forsætisráðherra þá heldur fólksflóttinn áfram og lausn ríkisstjórnarinnar virðist felast í því að biðla til stjórnvalda í Noregi að bjóða Íslendingum ekki vinnu samkvæmt norskum launakjörum.
Staðreyndin er sú að ríkisstjórninni hefur gengið mjög illa að auka samkeppnishæfni landsins eftir bankahrunið og í dag erum við á svipuðum slóðum og Eistland, Pólland og Kasakstan. Atvinnuleysið er í hæstu hæðum og væri raunar enn hærra ef ekki væri fyrir þennan gríðarlega brottflutning. Fjárfesting í landinu er mjög lítil og fréttum af ungu fólki sem hyggst flytja af landi brott fjölgar. Atgervisflóttinn er að verða bláköld staðreynd. Tækni- og iðnaðarmenn flytjast af landi brott, aðeins þriðjungur læknanema er tilbúinn að koma aftur heim að loknu námi o.s.frv.
Hið jákvæða er þó að sóknarfæri okkar liggja mjög víða. Eftir hrun áttum við Íslendingar mikil tækifæri að vinna okkur hratt upp úr efnahagslægðinni og koma þannig í veg fyrir þessa þróun. Nú má ekki meiri tími glatast og við þessar aðstæður er mikilvægt að ríkisstjórnin sýni forystu í verki. Það þarf að finna raunhæfa lausn á skuldavanda heimilanna, efla innlenda framleiðslu á öllum sviðum, auka hagvöxt og draga úr atvinnuleysi. Ég er þess fullviss að hægt er að ná sátt bæði á Alþingi og meðal þjóðarinnar um að skapa umgjörð fyrir þessar áherslur. Reynslan sýnir því miður að það getur ekki orðið undir forystu núverandi ríkisstjórnar.
Tengdar fréttir

Góður árangur og sóknarfæri Íslands
Hvert sem litið er blasa við skýr merki þess að Ísland er hröðum skrefum að vinna sig úr hruninu. Hagvöxtur er hafinn og vaxandi bjartsýni gætir í spám helstu greiningaraðila um hagvöxt næstu ára. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs bjó aðeins eitt land innan OECD við meiri hagvöxt en Ísland og ýmislegt bendir til þess að hagvöxtur ársins 2011 kunni að vera vanmetinn. Störfum fjölgar á ný og það dregur úr atvinnuleysi, en miðað við tölur í júlí hefur það ekki verið lægra síðan í desember 2008. Kaupmáttur launa hefur ekki verið hærri frá hruni og kaupmáttur lægstu launa hefur hækkað hlutfallslega mest þannig að jöfnuður í tekjuskiptingu hefur aukist. Þessar staðreyndir eru ótvíræður vitnisburður um að við Íslendingar erum á réttri leið.
Skoðun

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Daði Már týnir sjálfum sér
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun
Anna María Ágústsdóttir skrifar

Aðgerðir gegn mansali í forgangi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Framtíðin fær húsnæði
Ingunn Gunnarsdóttir skrifar

Börnin sem deyja á Gaza
Elín Pjetursdóttir skrifar

Brýr, sýkingar og börn
Jón Pétur Zimsen skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Hvað er lýðskóli eiginlega?
Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar

Búum til pláss fyrir framtíðina
Birna Þórarinsdóttir skrifar

Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi
Drífa Sigfúsdóttir skrifar

Kveikjum neistann um allt land
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ætlar Ísland að fara sömu leið og Evrópa í útlendingamálum?
Kári Allansson skrifar

Samtökin 78 verðlauna sögufölsun
Böðvar Björnsson skrifar

Afstaða – á vaktinni í 20 ár
Arndís Vilhjálmsdóttir,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi
París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Gestur Jónsson skrifar

Út af sporinu en ekki týnd að eilífu
María Helena Mazul skrifar

Meira að segja formaður Viðreisnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar