Tónlist

Sissel Kyrkjebø aftur til Íslands

Sissel Kyrkjebø nýtur mikilla vinsælda en plötur hennar hafa selst í milljónum eintaka.
Sissel Kyrkjebø nýtur mikilla vinsælda en plötur hennar hafa selst í milljónum eintaka.
Einn heppinn drengjasópran fær að syngja með norsku stórsöngkonunni Sissel Kyrkjebø á Frostrósar-tónleikum í Hörpu 10. desember. Haldnar verða sérstakar áheyrnarprufur um miðjan október þar sem strákar geta látið ljós sitt skína. Að sögn Samúels Kristjánssonar tónleikahaldara er ekki enn orðið ljóst hvert lagið verður sem hinn útvaldi fær að syngja.

Tónleikarnir nefnast Frostrósir klassík en þetta er annað árið í röð sem slíkir tónleikar eru haldnir samhliða Frostrósa-tónleikunum sjálfum.

Einvalalið söngvara kemur fram með Kyrkjebø en hún mun meðal annars syngja dúett með Garðari Thor Cortes. Þetta er í annað sinn sem Sissel kemur fram á Frostrósa-tónleikum og Samúel segir hana vera mikinn feng.

„Tónleikarnir hennar 2006 heppnuðust alveg feikilega vel og hún er mjög spennt fyrir því að koma aftur hingað,“ segir Samúel en þeim tónleikum var sjónvarpað út um allan heim og er talið að alls hafi 150 milljónir manna horft á þá.

Þetta er tíunda árið sem Frostrósir eru haldnar en af því tilefni verða haldnir veglegir afmælistónleikar í Hörpu 3.-5. desember þar sem fram koma helstu söngvarar hinna íslensku Frostrósa frá upphafi en miðasala hefst í október. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×