Umhverfissóðar vilja Icelandic 1. október 2011 05:00 Sjávarþorp í Alaska Mengun frá fiskvinnslustöðvum Trident í Alaska hefur lengi verið vandamál sem nú á að taka á, segir talsmaður bandarísku umhverfisverndarstofnunarinnar (EPA). Nordicphotos/AFP
Bandaríska fiskvinnslufyrirtækið Trident Seafoods hefur samþykkt upphæð sem jafngildir um 300 milljónum íslenskra króna í sekt vegna umhverfisspjalla við fjórtán fiskvinnslustöðvar fyrirtækisins í Alaska. Trident er eitt nokkurra fyrirtækja sem boðið hafa í Icelandic Group, sem er í söluferli hjá Framtakssjóði Íslands, eiganda fyrirtækisins. Auk þess að greiða sekt í ríkissjóð hefur Trident lofað að eyða sem jafngildir um 3,6 milljörðum í að hreinsa upp mengun frá fiskvinnslustöðvunum, að því er fram kemur í bandaríska dagblaðinu Seattle Times í gær. Fyrirtækið varð uppvíst að því að sturta tugum milljóna kílóa af fiskúrgangi í sjóinn við vinnslustöðvar sínar. Mengunin eyddi lífríki á stórum hafsvæðum. Á köflum er úrgangurinn eins og „þykkt slímugt teppi af slori sem kæfir lífríkið í sjónum og truflar alla fæðukeðjuna í sjónum“, sagði Tara Martich hjá bandarísku umhverfisverndarstofnuninni (EPA). Trident er eitt af stærstu fiskvinnslufyrirtækjum heims. Það gerir út fjölda skipa, rekur sautján verksmiðjur í Bandaríkjunum og hefur um 8.000 starfsmenn í vinnu samkvæmt upplýsingum á vefsíðu fyrirtækisins.- bj
Fréttir Mest lesið „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Sjá meira