Mömmuvænt alþýðupopp í Þjóðleikhúskjallaranum 10. nóvember 2011 07:00 Meðlimir 1860 eru þrír en hljóðfærin sem þeir spila á eru töluvert fleiri. Þeir hafa vakið athygli á tónleikum fyrir snerpu í hljóðfæraskiptum í miðjum lögum. Frá vinstri eru þeir Kristján, Hlynur og Óttar. frettablaðið/anton
Tríóið 1860 tók til starfa fyrir réttu ári en hefur þegar látið frá sér sína fyrstu breiðskífu, sem kallast Sagan. Hljómsveitin spilar þjóðlagaskotið popp sem fengið hefur góðar viðtökur hjá landanum. Útgáfutónleikar verða haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld klukkan 22. „Við Óttar erum æskuvinir og höfum spilað í hinum ýmsu hljómsveitum saman. Við vorum farnir að prófa okkur eitthvað áfram tveir saman, en Óttar sá svo Kidda spila á harmonikku eitthvert kvöldið fyrir rúmu ári og sá að þarna var komið hljóðfærið sem vantaði til að fullkomna okkar hljóm. Þetta byrjaði svo að blómstra um leið og við vorum komnir þrír saman,“ segir Hlynur Júní Hallgrímsson, söngvari sveitarinnar. Auk Hlyns skipa 1860 þeir Óttar Birgisson gítarleikari og Kristján Hrannar Pálsson píanóleikari. 1860 vakti athygli strax frá upphafi því hljómsveitarmeðlimir notuðu sér nútímatækni til að koma sér á framfæri. Þeir byrjuðu strax á því að deila lögunum sínum á samskiptavefnum Youtube. „Við gerðum þetta aðallega fyrir vini okkar til að byrja með en allt í einu hafði einhver linkað á myndband með okkur á einhverjum vinsælum heimasíðum og við komnir með einhver þúsund áhorf á myndband sem var aðallega hugsað fyrir litlu systur, mömmu og ömmu. Það er auðvitað skemmtilegt að geta deilt þessu en þetta vatt upp á sig og við fengum svona smá meðbyr.“ Aðdáendahópur sveitarinnar er því ekki eingöngu bundinn við Ísland og nú þegar hefur fólk hvaðanæva að úr heiminum deilt myndböndum á vefnum þar sem það syngur og spilar sínar útgáfu af lögum sveitarinnar. „Tónlistin okkar á sér eiginlega sjálfstætt líf á Youtube, því oft settum við fyrstu útgáfur af lögum á vefinn, en breyttum síðar hljómagangi eða öðru. Svo sjáum við samt einhvern frá Bandaríkjunum flytja lag með okkur eins og það var bara eftir fyrstu æfingu.“ Bandarískir aðdáendur sveitarinnar munu fá tækifæri til að kynnast sveitinni betur strax eftir áramót því í næstu viku lýkur upptökum á EP-plötu sem sveitin gefur út vestanhafs. Það er fyrirtækið sem sér um sænska listamanninn Tallest Man on Earth sem sér um útgáfuna, en eigandi fyrirtækisins komst einmitt í kynni við bandið þegar hann rakst á myndband sveitarinnar á Youtube. Tónlist 1860 hefur verið mikið spiluð í útvarpi og fyrsta smáskífa plötunnar, Snæfellsnes, sat meðal annars í öðru sæti vinsældarlista Rásar 2 í sumar. Hlynur segir þá félaga hæstánægða með hversu breiður áheyrendahópurinn er. „Maður gerði ráð fyrir því að tónlistin myndi höfða til fólks á sama aldri og maður sjálfur er, en það kom okkur aðeins á óvart að krakkar sem eru talsvert yngri en við eru að fíla þetta og svo eru vinkonur ömmu minnar heitustu aðdáendur okkar.“ Hlynur hvetur fólk til að leggja leið sína í Þjóðleikhúskjallarann í kvöld. „Ef fólk ætlar að mæta á eina tónleika með okkur á lífsleiðinni þá held ég að þetta verði að vera þeir. Við verðum þarna með heilan her af fagfólki með okkur, þetta verður eitthvað alveg sérstakt.“ bergthora@frettabladid.is
Tónlist Mest lesið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu Lífið Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Menning „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Lífið Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Tíska og hönnun Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Lífið Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Tónlist Fleiri fréttir Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira