Kynna tónlistina í vinsælum útvarpsþætti 10. nóvember 2011 11:00 Þær Steinunn, Klara og Alma gefa út mixteip á heimasíðu sinni, thecharliesofficial.com, á föstudaginn og kynna tónlistina í vinsælum útvarpsþætti og á tónleikum sama dag. Mynd/Gréta Karen Grétarsdóttir „
Við erum rosalega spenntar fyrir þessu," segir Alma, sem ásamt þeim Klöru og Steinunni myndar stúlknasveitina The Charlies. Á föstudaginn kemur út svokallað mixteip frá sveitinni sem aðdáendur geta hlaðið niður af netinu og fara stúlkurnar í mikla kynningarherferð vegna þessa í Los Angeles. „Við byrjum daginn á að fara í upptöku fyrir þáttinn Weekend Mixtape á útvarpsstöðinni 102.7KiisFM en það er mjög eftirsóknarvert fyrir nýja listamenn að komast í þáttinn," segir Alma en útvarpsstöðin er ein sú vinsælasta í Los Angeles og er Ryan Seacrest meðal annars með útvarpsþáttinn sinn á þeirri stöð. „Listamenn á uppleið hafa stigið sín fyrstu skref í þættinum eins og Kreayshawn, Dev, Nick Cannon og vinsæla YouTube-parið Karmin. Við erum því alsælar með að komast að í þættinum." Hægt verður að horfa á þáttinn á netinu frá og með 18. nóvember hér á síðu KiisFM. Um kvöldið verður svo allsherjar útgáfupartí á skemmtistaðnum Colony þar sem The Charlies koma fram ásamt hópi dansara en á staðnum er sundlaug sem hefur verið breytt í svið fyrir sveitina. „Þetta er rosalega flottur staður og við hlökkum til að koma þar fram. Áður en við syngjum verður tískusýning á vegum Kitson-fatakeðjunnar sem er haldin í þágu þeirra sem hafa veikst af heilakrabbameini og vekja athygli á málstaðnum." -áp
Tónlist Mest lesið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Alma stolt af syninum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Lífið Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira