Borga tæknifrjóvgun fullu verði 29. desember 2011 03:00 ekki niðurgreitt Þrjátíu milljónir króna munu sparast við breytingar á þátttöku í kostnaði við tæknifrjóvganir. norciphotos/getty
Hætt verður að niðurgreiða fyrstu tæknifrjóvgun barnlausra para og einhleypra kvenna um áramót. Þá verður alfarið hætt að niðurgreiða tæknifrjóvgunarmeðferðir fyrir fólk sem á barn fyrir, en þátttaka Sjúkratrygginga í þeim tilvikum hefur verið 15 prósent af kostnaði. Sjúkratryggingar Íslands greiða 65 prósent af kostnaðinum við aðra til fjórðu tæknifrjóvgunarmeðferð, ef fólk þarf á þeim að halda. Áætlað er að útgjöld Sjúkratrygginga Íslands muni lækka um 30 milljónir króna á ári vegna þessara breytinga. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur gefið út reglugerð vegna þessa, en það er nauðsynlegt þar sem enginn samningur er í gildi milli Sjúkratrygginga og ART Medica, læknastofunnar sem sér um tæknifrjóvganir hér. Samningurinn rann út fyrr á árinu og ekki náðust nýir samningar. Þá setti velferðarráðherra reglugerð til bráðabirgða. Reglugerðin nú gildir út árið 2012. - þeb
Fréttir Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira