Tímaritið Golf Digest hefur bundið enda á þrettán ára samstarf við kylfinginn Tiger Woods sem hefur þar með misst einn af sínum stærstu styrktaraðilum.
Golf Digest var næststærti styrktaraðili Woods á eftir Nike sem hefur haldið mikilli tryggð við sinn mann þrátt fyrir hneykslismálin sem skóku heimsbyggðina fyrir rúmu ári síðan.
Þá missti hann bæði samninga við fyrirtækin Accenture, AT&T og Gatorade og nú fyrir tveimur vikum bættist Gillette í hópinn.
Ástæðan er sú að upp komst að Woods hafði ítrekað haldið framhjá eiginkonu sinni, Elin Nordegren. Hann reyndi að bjarga hjónabandinu með því að taka sér frí frá golfi í um fimm mánuði en það tókst ekki.
Síðan hann byrjaði aftur að spila hefur hann verið langt frá sínu besta og missti í lok október efsta sæti heimslistans til Lee Westwood.
Woods hafði lengi birt greinar í Golf Digest sem voru aðallega ætlaðar sem kennsluefni í golfi. Samningur hans við tímaritið rann út um síðustu áramót og komust aðilar ekki að samkomulagi um nýjan samning.
Nordegren er sögð hafa fengið væna upphæð í skilnaðinum við Tiger en kappinn er þó enn moldríkur og ætti ekki að þurfa hafa miklar fjárhagslegar áhyggjur af framtíðinni.
Tiger missti einn sinn stærsta styrktaraðila
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
