„Jólakortin eru upphafið af undirbúningnum á okkar heimili," segir Guðmundur M. Ásgeirsson, betur þekktur sem Magni í Á móti sól, spurður út í jólaundirbúninginn.
„Það hefur skapast sú hefð að við búum þau til sjálf og það er farið að leggja höfuðið í bleyti strax þegar fer að hausta."
„Konan mín er svo fyrirhyggjusöm að það er búið að kaupa flestar gjafir í byrjun nóvember og þar af leiðandi ekkert til að stressa sig yfir."
„Aðventan fer síðan bara í að skreyta og setja upp seríur í rólegheitum."
„Ég myndi segja að við værum óttarlega mikil jólabörn á þessu heimili," segir Magni.

„Ég dett samt yfirleitt ekkert í jólaskapið fyrr en ég finn lyktina af hryggnum í ofninum," svarar Magni aðspurður hvað kemur honum í hátíðarskap.
„Ég á mjög margar yndislegar minningar frá jólunum," segir Magni þegar talið berst að góðum minningum tengdum jólahaldi.

„Þetta finnst mér ennþá stór hluti af jólahaldinu þó svo að ég verði nokkrum dögum of seinn þetta árið," segir hann.
Hvar verður fjölskyldan á aðfangadag? „Við ætlum að vera heima hjá okkur á Akureyri litla fjölskyldan - það stefnir meira að segja í að við eldum allt sjálf," segir Magni.-elly@365.is