Dallas átti í vandræðum með lélegasta lið deildarinnar 16. mars 2012 08:30 Dirk Nowitzki skoraði 27 stig fyrir meistaralið Dallas sem vann upp 14 stiga forskot Charlotte í fyrri hálfleik. AP
Það var mikið um að vera í NBA deildinni í gær en þá var lokað fyrir leikmannaskipti á þessari leiktíð. Mörg lið mættu því "vængbrotinn“ til leiks. Margir þekktir kappar fengu nýjan vinnustað án þess að óska eftir því. Meistaralið Dallas átti í vandræðum gegn lélegasta liði deildarinnar á heimavelli en Dallas hafði tapað 8 af síðustu 11 leikjum sínum í deildinni. John Wall, sem er talinn einn efnilegasti leikmaður deildarinnar, skoraði 26 stig og gaf 12 stoðsendingar í 99-89 sigri Washington gegn New Orleans. Washington var áberandi á leikmannamarkaðinum í gær og virtust breytingarnar hafa góð áhrif á liðið sem hefur aðeins unnið 10 leiki í vetur. Dirk Nowitzki skoraði 27 stig fyrir meistaralið Dallas sem vann upp 14 stiga forskot Charlotte í fyrri hálfleik. Dallas hefur aldrei tapað gegn Charlotte Bobcats í 15 viðureignum. Jason Terry skoraði 18 stig fyrir Dallas sem hafði tapað 8 af síðustu 11 leikjum sínum. Corey Maggette skoraði 21 stig fyrir Charlotte sem er með þann vafasama heiður að vera með versta árangur allra liða í deildinni – 6 sigrar og 36 töp. Þess má geta að einn besti körfuboltamaður allra tíma, Michael Jordan, er eigandi Charlotte Bobcats. Kevin Durant skoraði 24 stig og Russel Westbrook skoraði 23 fyrir Oklahoma sem hafði ekki mikið fyrir 103-90 sigri gegn Denver á útivelli. Denver var vængbrotið í þessum leik eftir stór leikmannaskipti. Miðherjinn Nene er farinn frá Denver en Brasilíumaðurinn var sendur til Washington í skiptum fyrir JaVale McGee og Ronny Turiaf sem voru ekki með Denver í nótt. Úrslit frá því í nótt: Washington – New Orleans 99-89 Dallas – Charlotte 101-96 Denver – Oklahoma 90-103 Utah – Minnesota 111-105 (eftir framlengingu) LA Clippers – Phoenix 87-91
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Íslenski boltinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Íslenski boltinn Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Í beinni: Valur - Stjarnan | Mikið undir í Evrópubaráttu Íslenski boltinn Í beinni: Breiðablik - ÍA | Truflar ÍA titilbaráttuna? Íslenski boltinn Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Sjá meira