Körfubolti

Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga

Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum.

Körfubolti

Ó­trú­legur LeBron leiddi Lakers til sigurs

Útlitið var ekki bjart hjá Los Angeles Lakers þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum gegn Houston Rockets í átta liða úrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. En tveir reyndustu leikmenn Lakers komu liðinu í framlengingu þar sem það tryggði sér svo sigur og komst 3-0 yfir í einvíginu.

Körfubolti

„Ég má ekki segja leyndar­mál“

Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum ánægður með öruggan sigur sinna kvenna á Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Einvígið er jafnt 1-1.

Körfubolti

Pargo: Þurfum að vinna tvo leiki í við­bót

Jeremy Pargo skoraði sigurkörfu Grindvíkinga í sigri þeirra á Val í fyrsta leik undanúrslita einvígis Grindavíku og Vals í Grindavík í kvöld. Lokastaðan 82-81 en Valur leiddi nánast allan leikinn en Grindavík var yfir þegar það skipti máli.

Körfubolti

Martin með stigahæstu mönnum í sigri

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Martin Hermannsson, fór mikinn er lið hans Alba Berlin hafði betur gegn Ulm í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 89-77, tólf stiga sigur Alba Berlin.

Körfubolti

Sel­fyssingar svöruðu fyrir sig

Staðan í einvígi Selfoss og Sindra í undanúrslitum umspils um sæti í Bónus deild karla í körfubolta er orðin 1-1 eftir 85-81 sigur Selfyssinga á heimavelli í kvöld.

Körfubolti