Hamilton: Svekkelsið í Ástralíu hefur engin áhrif

Hamilton upplifði sitt versta tímabil á ferlinum í fyrra vegna mikil álags í persónulega lífinu. Sambandslit hans og söngkonunar Nicole Scherzinger fóru þar hæst ásamt því að fjölskylda hans dró sig í fyrsta sinn örlítið frá Lewis til að fylgjast með yngri bróður hans stíga sín fyrstu skref í kappakstri.
Hann hefur þó ekki áhyggur af því að slíkt hendi hann aftur. "Ég átti rétt á að vera vonsvikinn," sagði Hamilton við fjölmiðla í Malasíu. "Ég er búinn að leggja hart að mér í allan vetur og uppskeran var ekki alveg eins og ég bjóst við."
Lewis ræsti fremstur um síðastliðna helgi með liðsfélaga sinn, Jenson Button, við hlið sér en hrapaði niður í þriðja sætið í kappakstrinum sjálfum. Button tókst betur til og sigraði kappaksturinn.
Tengdar fréttir

Hamilton: Ég missti alla einbeitingu á síðasta tímabili
Formúli 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur nú stigið fram í sviðsljósið og viðurkennt að hann hafi misst einbeitinguna bæði innan sem og utan brautarinnar árið 2011.

Jenson Button vann ástralska kappaksturinn
Jenson Button, á McLaren bíl, fór með sigur af hólmi í ástralska kappakstrinum í dag. Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull varð annar eftir að hafa ræst í sjötta sæti á ráslínunni.

Fatlaður bróðir Hamiltons fetar í spor bróður síns
Breska ríkissjónvarpið sýndi á dögunum heimildamyndina "Racing with the Hamiltons: Nic in the driving seat". Hún fjallar um hvernig bróðir Formúlu 1 ökuþórsins Lewis Hamilton framkvæmir það sem hann hélt að væri sér ávalt ókleift.

Hamilton yfirgefur Sviss og flytur til Mónakó
Breski formúluökumaðurinn Lewis Hamilton ætlar að flytjast búferlum frá Sviss til Mónakó en Lewis hefur búið í Sviss frá árinu 2007. Hamilton bjó fyrstu þrjú árin í Genf en hann hefur búið í Zürich undanfarin misseri. Samkvæmt breskum fjölmiðlum er Hamilton frekar leiður á rólegheitunum í Sviss.

Hamilton eyðir tíma með fyrrverandi
Þó að þau hafi hætt saman í nóvember eru Lewis Hamilton (27) og söngkonan Nicole Scherzinger (33) enn góðir vinir. Hamilton tilkynnti á Twitter fyrir helgi að hann væri á tónleikum Nicole í Dublin að hún hefði verið frábær.