Um helgina fer kínverski kappaksturinn fram í Shanghai. Brautin var, eins og sú sem keppt var á síðast í Malasíu, hönnuð af brautahönnuðinum Herman Tilke. Hér var fyrst keppt árið 2004. Þá ók Rubens Barrichello Ferrar bíl sínum fyrstur yfir endalínuna.
Lewis Hamilton er sá eini sem hefur unnið kappaksturinn oftar en einu sinni. Hann vann í annað sinn í fyrra. Þar til hafði brautin alltaf framkallað nýja sigurvegara. Í réttri röð hafa Barrichello, Fernando Alonso, Michael Schumacher, Kimi Raikkönen, Lewis Hamilton, Sebastian Vettel og Jenson Button unnið í Kína.
Rigning gæti sett svip sinn á mótið í Kína í ár. Það ringdi gríðarlega í upphafi malasíska kappakstursins fyrir þremur vikum. Það ruglaði röðinni í heimsmeistaramótinu mikið og nú er Alonso á lélegum Ferrari bíl fremstur. Þá mun hitastigið vera lágt sem mun hafa mikil áhrif á dekkin alla mótshelgina.
Brautin er mjög hröð og flæðandi. Margir gagnrýna hana þó og segja að hún sé of einhæf og bjóði ekki upp á mikinn framúrakstur. David Coulthard, ökumaðurinn sem Íslendingar muna eftir sem liðsfélaga Mika Hakkinen hjá McLaren, er til dæmis ekki ánægður með fyrstu fjórar beygjurnar og segir þær lýsa brautinni best: Hraður kafli sem þrengist og hægir á bílunum þar til þeir nánast stöðva og enginn kemst framúr.
Það eru tvö sérstaklega mikilvæg svæði. Mikilvægt er að ná beygjum 3 og 4 rétt og vel því hraðinn að beygju sex skiptir miklu máli fyrir restina af hringnum. Beygja þrjú er raunar bara endirinn á beygju 1 því saman mynda beygjurnar mjög flókið svæði fyrir ökumennina.
Þá eru beygjur 11 og 12 mjög mikilvægar því á eftir þeim fer lengsti beini kaflinn á tímabilinu í Formúlu 1 í ár.
DRS svæði: Á beina langa beina kaflanum fyrir beygju 14.
Dekkjagerðir í boði: Meðal (prime) og mjúk (option)
Efstu þrír í fyrra:
1. Lewis Hamilton - McLaren
2. Sebastian Vettel - Red Bull
3. Mark Webber - Red Bull
Allt mótið er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Föstudagur:
02:00 Æfing 1
06:00 Æfing 2
Laugardagur:
02:55 Æfing 3
05:50 Tímataka
13:30 Tímataka (endursýnt)
Sunnudagur:
06:40 Kínverski kappaksturinn
11:50 Kappaksturinn (endursýnt)
Staðan í titilbaráttunni eftir tvær umferðir
Ökumenn
1. Fernando Alonso - 35 stig
2. Lewis Hamilton - 30
3. Jenson Button - 25
4. Mark Webber - 24
5. Sergio Perez - 22
6. Sebastian Vettel - 18
7. Kimi Raikkönen - 16
8. Bruno Senna - 8
9. Kamui Kobayashi - 8
10. Paul di Resta - 7
Bílasmiðir
1. McLaren - 55 stig
2. Red Bull - 42
3. Ferrari - 35
4. Sauber - 30
5. Lotus - 16
Möguleiki á rigningu og óvæntum úrslitum í Kína
Birgir Þór Harðarson skrifar
Mest lesið

Staðfestir brottför frá Liverpool
Enski boltinn


Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“
Fótbolti

„Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“
Körfubolti

Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar
Formúla 1



Sendu Houston enn á ný í háttinn
Körfubolti

Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð
Formúla 1
