Völundur Snær sjónvarpskokkur deilir með Lífinu, aukablaði Fréttablaðsins í dag fyrstu grilluppskrift sumarsins.
BBC Lifestyle sjónvarpsstöðin hefur nú hafið sýningar á þáttum sjónvarpskokksins, Delicious Iceland, og er hann þar með kominn í hóp með frægu fólki á borð við Nigellu Lawson, Jamie Oliver og Gordon Ramsey sem öll hafa verið með matreiðsluþætti fyrir sjónvarpstöðina. Snemma í sumar verða þættirnir svo sýndir á RÚV.
Steikarsalat með ananas- og engiferdressingu
Tvær 200 gramma nautasteikur eru lagðar í viskí- og púðursykurskryddlög í a.m.k. 1 klukkustund.
Taktu steikurnar úr kryddleginum og skelltu á mjög heitt grill. Grillaðu að eigin ósk, í 2-3 mínútur á hvorri hlið til að fá kjötið meðalhrátt (medium-rare).
Láttu steikurnar standa í um 10 mínútur áður en þú skerð þær svo kjötið haldi safanum og meyrni (ef þú skerð það of fljótt rennur allur safinn úr kjötinu og út á diskinn eða brettið). Skerðu steikurnar í rúmlega sentimetra þykkar sneiðar. Pískaðu saman dressinguna, en geymdu ananasbitana og steinseljuna þar til síðast og bættu því varlega saman við.
Helltu dressingunni yfir salatið og settu skammt á hvern disk og steikarsneiðar yfir.
Viskí- og púðurskykurskryddlögur
1 tsk sítrónubörkur
1 tsk appelsínubörkur
2 hvítlauksgeirar, saxaðir og maukaðir, eða pressaðir
80 ml búrbonviskí eða Jack Daniels
¼ þéttfullur bolli af ljósum púðursykri
120 ml Kikkoman sojasósa
1 msk Bahncke Dijon-sinnep
1 tsk af sterkri sósu að eigin vali
Blandaðu öllu saman í grunnri skál og helltu yfir kjötið sem á að kryddleggja, láttu standa í a.m.k. klukkustund í ísskáp.
Lengri kryddlögn gerir kjötið bragðmeira, sérstaklega ef sneiðarnar eru þykkar. Snúðu kjötinu af og til, eða settu í stóran, lokaðan plastpoka og snúðu öðru hvoru.
Ananas- og engiferdressing
1 msk Kikkoman sojasósa
5 msk Sun Glory ananassafi
½ tsk fínt rifin engiferrót
½ tsk sesamolía, ljós eða dökk
1 miðlungsstór hvítlauksgeiri, maukaður eða saxaður
1 tsk Meli hunang
1 msk Isio 4 canola- eða grænmetisolía
2 msk ferskur límónusafi
¼ tsk malaðar rauðar piparflögur
1 msk söxuð fersk steinselja
¼ bolli ferskur ananas í teningum
Öllu blandað saman í skál.
Salat
Salatblanda að eigin vali
1 avókadó (lárpera)
1 ½ bolli af kirsuberjatómötum, skornir í fjórðunga
1 fennika skorin í þunna strimla
2-3 hreðkur í þunnum sneiðum
1 fersk appelsína afhýdd og laufin skorin úr
Öllu blandað saman í skál.
