Lífið

Ráð­herrar brugðu á leik og tóku lagið

Eiður Þór Árnason skrifar
Ráðherrarnir sex virðast skemmta sér vel í kvöld.
Ráðherrarnir sex virðast skemmta sér vel í kvöld. Kristrún Frostadóttir

Karlráðherrar ríkisstjórnarinnar brugðu á leik á árshátíð Stjórnarráðsins sem fram fer í kvöld og klæddu sig upp í fangaklæðnað með tilvísun í frægu strákasveitina Iceguys. Ráðherrarnir bættu um betur og tóku lagið Gemmér gemmér upp á sviði sem umrædd hljómsveit gerði frægt og létu ekki sitt eftir liggja í sviðshreyfingum, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra birtir mynd af sér með Loga Einarssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Daða Má Kristóferssyni og Ragnari Þór Ingólfssyni á samfélagsmiðlum sínum. 

Hún segir uppátækið vera svar við atriði Valkyrjanna svokölluðu á árshátíðinni í fyrra þar sem ráðherrarnir Kristrún, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fluttu lögin Simply The Best með Tinu Turner og You Don't Own Me sem Lesley Gore gerði þekkt með eftirminnilegum hætti.

Árshátíð Stjórnarráðsins fer fram í veislusalnum Vör við Skarfabakka og sá fjármála- og efnahagsráðuneytið um skipulagningu veislunnar að þessu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.