Veiði

Urriðinn að stækka í Laxá

Tíkin Njála stendur við fallegan urriða.
Tíkin Njála stendur við fallegan urriða. Trausti Hafliðason
Meðalþyngd urriða í Laxá í Laxárdal hefur smám saman verið að aukast undanfarin ár samkvæmt því sem kemur fram á vef SVFR.

"Samkvæmt tölulegum staðreyndum sem árnefnd sendi frá sér á dögunum var meðalþungi urriða í Laxárdal sl. sumar tæp tvö kílógrömm, eða nálega fjögur pund," segir á vef SVFR. "Hefur meðalþungi hægt og rólega verið að aukast á milli ára. Samsvarandi tölur fyrir veiðisvæðin í Mývatnssveit sumarið 2011 voru 1.6 kg eða rúmlega þrjú pund. Stórum hluta aflans síðastliðin ár hefur verið sleppt aftur lifandi í ána, og vænta má þess að þeir fiskar muni halda áfram að stækka. Sem dæmi um þetta var um 2.300 urriðum gefið líf á svæðunum í fyrrasumar."

Veiði í Laxá í Laxárdal hefst eftir viku, eða laugardaginn 2. júní og veiði í Laxá í Mývatnssveit hefst þriðjudaginn 5. júní. Töluverð hlýindi eru fyrir norðan núna og getur það skipt sköpum fyrir veiðina í upphafi veiðitímabilsins. Það verður því mjög gaman að sjá hvernig veiðin verður í opnunni í þessum tveimur frægu ám.

Á vef SVFR er sagt frá því að árnefndin hafi verið önnum kafin í vor.

"Árnefndin hefur verið öflug nú í vor og skipti um blöndunartæki í sturtum, eldhúsi og á salernum, auk þess að keypt voru ný rúm í veiðihúsið. Eins hefur verið skipt út hluta af rúmum í Rauðhólum. Þess má geta að lokum að árnefnd Laxár hefur ákveðið að hefja skráningu á GPS-hnitum fyrir alla veiðistaði í Mývatnssveit og Laxárdal. Er það gert til þess að auðvelda veiðimönnum, ekki síst þeim sem nýir eru, að ná áttum á þessu víðfema veiðisvæði."






×