Gljúfurá í Borgarfirði var opnuð veiðimönnum á mánudagsmorgun. Nokkuð líf var í ánni og fisk að finna upp á efstu veiðistaði, segir á vef SVFR.
Samkvæmt upplýsingum frá veiðimönnum þá er ólag á laxateljaranum, og í raun hefur hann verið ónothæfur frá því hann var settur niður um sl. mánaðarmót. Því eru engar upplýsingar um göngur í Gljúfurá fram til þessa en miðað við það menn sáu í ánni er nokkuð af laxi gengið. Opnunarhollið veiddi einn og hálfan dag, setti í níu laxa og landaði fimm þeirra. Um var að ræða hefðbundna Gljúfurársmálaxa.
Laxar sáust í Skurðinum, Kerinu, Húshyljunum, Rennum, Fossbergi og í efstu veiðistöðunum í gljúfrinu. Það lítur því ágætlega út fyrir þá sem eiga leyfi á næstunni í Gljúfurá.
svavar@frettabladid.is
