Körfubolti

Parker vill fá 20 milljónir dollara í skaðabætur frá næturklúbbi

Körfuboltakappinn Tony Parker, leikmaður San Antonio Spurs, hefur kært næturklúbb í New York og vill háar skaðabætur vegna meiðsla sem hann varð fyrir er rapparar slógust í klúbbnum.

Slagsmál brutust út á milli söngvaranna Chris Brown, Drake og fylgdarliðs þeirra. Allt varð vitlaust og flöskum meðal annars kastað í allar áttir.

Parker meiddist illa á auga en hann var aðeins saklaus áhorfandi að slagsmálunum.

Körfuboltakappinn vill fá 20 milljónir dollara frá staðnum en hann segir að öryggisgæslan hafi verið í molum á staðnum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×