Veiði

Góð opnun í Breiðdalsá; Þrír í Jöklu en dauft í Hrútu

Þröstur Elliðason með lúsuga 68 sentímetra hrygnu á Stapabreiðunni í Breiðdalsá.
Þröstur Elliðason með lúsuga 68 sentímetra hrygnu á Stapabreiðunni í Breiðdalsá. Mynd / Strengir
Níu laxar eru komnir á land í Breiðdalsá sem opnaði í gær. Einn laxanna veiddist á silungasvæðinu á laugardaginn. Þrír veiddust í Jöklu en dauft var í Hrútafjarðará en þessar tvær ár opnuðu einnig í gær.

Þó laxveiðin í Breiðdalsá hafi formlega hafist í gær kom fyrsti laxinn á land á laugardaginn. Þá var Reimar Ásgeirsson að renna fyrir silungi við Flögunesbakka fyrir ofan fossin Efri-Beljanda. Samkvæmt því sem segir vefsíðu Strengja er mjög sérstakt að lax sé kominn þarna upp eftir svona snemma sumars.

Þröstur Elliðason veiddi fyrsta laxinn í opnunni í gærmorgun eftir aðeins 10 mínútur. Það var 68 sentímetra hrygna sem tók Sunray Shadow hitch túpu á Stapabreiðu í Tinnu. Af þeim löxum sem veiddust í Breiðdalsá í gær voru flestir á bilinu 70 til 85 sentímetrar - sá stærsti var reyndar 90 sentímetra langur.

Á Jöklusvæðinu veiddust þrír laxar í gær. Einn veiddist í Steinboganum, sá var ekki lúsugur, en annar nýrunninn veiddist síðan í Sauðárbreiðu í Kaldá. Veiðivísir hefur ekki upplýsingar um það hvar þriðji laxinn veiddist.

Í hádeginu í gær hafði enginn lax komið á land í Hrútafjarðará en seint í gærkvöldi fengust engar upplýsingar um það hvernig kvöldvaktin hefði gengið.

trausti@frettabladid.is







×