Veiðivötn búin að rjúfa 10.000 fiska múrinn Svavar Hávarðsson skrifar 18. júlí 2012 14:30 Dagsveiði frænda í Veiðivötnum nýlega. Mynd/Haukur
Veiðivötn gefa vel þessa dagana og meðalþyngdin á silungnum fer hækkandi. Einn heimildarmanna Veiðivísis er nýkominn heim en hann var við veiðar við annan mann í tvo daga. Hann segir svo frá: „Ég og frændi minn vorum að lenda eftir frábæra veiðivatnaferð, við veiddum í 2 daga og lönduðum 30 fiskum en hirtum 24, stærsti var 9,7 pund og heildarþingd 47 kíló þannig að meðalviktin var um 2 kíló :) Fengum mest í Litlasjó og Grænavatni og allt á svartar straumflugur." Veiði í Veiðivötnum hófst 18. júní og fór rólega af stað og aðeins 3.075 fiskar komu á land í fyrstu vikunni. Munar þar mest um litla veiði í Litlasjó samanborið við undanfarin ár. Fiskarnir þar eru nú greinilega komnir á ról og veiðin að glæðast.Á heimasíðu Veiðivatna veidivotn.is segir að í fjórðu viku komu 2.263 fiskar á land, sem er mjög gott samanborið við undanfarin ár. Heildarveiðin er komin í 10.170 fiska og meðalþyngdin tvö pund. Stærsti fiskurinn er sem fyrr 12.8 punda urriði úr Grænavatni. Meðalþyngdin hækkar í Litlasjó en í fjórðu viku komu þar 1.069 fiskar á land og meðalþyngdin er komin í tæp þrjú pund. Jafnframt kom stærsti fiskurinn það sem af er sumri á land í vikunni. Hann vóg 10.4 pund. Heildarveiði það sem af er sumri í Litlasjó er 3.014 fiskar. Áfram veiðist vel í mörgum öðrum vötnum svo sem í Stóra Fossvatni, Hraunvötnum, Snjóölduvatni, Eskivatni, Kvíslarvatni og Langavatni. Þar sem veiðin í Litlasjó er góð flykkjast veiðimenn þangað, einkum á kvöldin og þar af leiðandi kemur minna á land í öðrum vötnum.Hér má sjá veiðina í heild eftir fjórðu viku í smáatriðum, en hrósa verður umsjónarmönnum svæðisins fyrir afburðagóða upplýsingagjöf til veiðimanna. svavar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Of mikið veitt í Soginu Veiði Róleg veiði en margir við bakkann Veiði Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns Veiði Fæðisskylda afnumin eftir 15. júlí í Laxá Veiði Rjúpusnafsinn ómissandi hjá mörgum Veiði Minnivallalækur tekur við sér Veiði Aðeins ein helgi eftir til rjúpnaveiða Veiði Eyjafjarðará að ná sér eftir mikil skakkaföll Veiði Kýs að hnýta flugur með konum Veiði Tilkynning frá SVFR vegna Hítará Veiði