Veiði

Laxá í Laxárdal: Stórurriðamok á þurrflugu!

Bæði ofan og neðan stíflu er Laxá, hvort sem er í Laxárdal, Mývatnssveit eða Aðaldal, stórfengleg veiðivatn.
Bæði ofan og neðan stíflu er Laxá, hvort sem er í Laxárdal, Mývatnssveit eða Aðaldal, stórfengleg veiðivatn. Mynd/Svavar
Þrátt fyrir að veðráttan norðan heiða að undanförnu sé laxveiðimönnum ekki að skapi, þá blóta menn ekki blíðunni á urriðasvæðunum ofan virkjunar.

Á heimasíðu SVFR segir frá því að hver stórurriðinn á fætur öðrum hefur glatt veiðimenn í Laxá í Laxárdal undanfarna daga – og flestir taka þurrflugur! Mikill fjöldi urriða á bilinu 5-7 pund hafa látið glepjast af þurrflugum veiðimanna og segir að óvenju mikið sé um stórfisk þetta sumarið. Engu að síður er veiðinni nokkuð misskipt, því þeir sem beita þurrflugu eru í stöðugum stórfiskum á meðan veiðimenn sem kjósa straumflugur og púpur eru í harki. Því ræður ekki síst að slýrek hefur aukist mikið í hitunum og því erfitt að beita öðru en þurrflugu. „Málið vandast hins vegar þegar að stórfiskar taka fluguna því þeir leita mikið í slýið og slíta sig lausa. Hins vegar er urmull af stórurriðum að koma á land og meðaþyngd í Laxárdal svipuð og í smálaxaám á Vesturlandi," segir í fréttinni.

Hér má kynna sér laus veiðileyfi og veiðitilhögun í urriðaparadísinni fyrir norðan á vef SVFR.

svavar@frettabladid.is






×