Veiði

Laxveiði í október

Trausti Hafliðason skrifar
Einbeittur veiðimaður á veiðistað númer 19 í Affallinu í Landeyjum.
Einbeittur veiðimaður á veiðistað númer 19 í Affallinu í Landeyjum. Mynd / Trausti Hafliðason
Laxveiðitímabilið er ekki búið því veitt er í þó nokkrum ám langt út október mánuð. Eru þetta allt hafbeitarár með töluverðri laxavon.

Vísast eru margir veiðimenn annað hvort búnir eða í þann mund að koma stöngunum fyrir inni í geymslu eða bílskúr. Það þarf þó ekki að vera þannig. Auðvitað er enn veitt í fjölmörgum sjóbirtingsám víða um land en það sem kannski færri vita er að lax er veiddur í nokkrum ám í október en þá er um að ræða hafbeitarár.

Á meðal þeirra áa sem enn bjóða upp á laxveiði eru Ytri-Rangá, Eystri-Rangá, Hólsá, Affallið, Þverá í Fljótshlíð og Tungufljót við Reykholt.

Veiðin í þessum ám getur verið ágæt þó langt sé liðið á haustið. Ekki þarf að fjölyrða um veiðina í Rangánum, því hún er jú flestum veiðimönnum kunn. Hins vegar hafa veiðst vel á fimmta hundrað laxar í Affallinu í Landeyum og hátt í 300 í Þverá í Fljótshlíð, þá er enn ágæt von í Hólsá og Tungufljóti.

Veiðimenn sem ólmir vilja lax í frystikistuna geta fengið upplýsingar um laus leyfi hér:



  • Ytri-Rangá, Hólsá og Tungufljót - agn.is
  • Eystri-Rangá, Affallið og Þverá - ranga.is


trausti@frettabladid.is






×