Hamilton hefur verið í viðræðum við Mercedes um nokkurt skeið og segir helstu ástæðu þess að hann færi sig um set að í boði séu "nýjar áskoranir".
Áður en Mercedes gat gefið út formlega yfirlýsingu um vistaskipti Hamilton lýsti McLaren yfir að Sergio Perez myndi fylla sæti Lewis á næsta ári. Perez hefur ekið frábærlega í sumar fyrir Sauber-liðið og staðið þrisvar sinnum á verðlaunapalli.
Mercedes hefur ekki gefið út hvert framhaldið verður hjá Michael Schumacher sem víkur fyrir Hamilton. Nico Rosberg mun aka þar áfram.
Hamilton hóf feril sinn í Formúlu 1 með McLaren árið 2007 og varð heimsmeistari strax ári síðar, árið 2008. "Nú er tími til kominn að takast á við ferskar áskoranir," sagði Hamilton. "Ég er mjög spenntur að hefja nýjan kafla í ferli mínum með því að færa mig um set."
"Mercedes Benz býr yfir ótrúlegri arfleið í kappakstri," sagði Hamilton jafnframt.
Kappakstursferill Hamiltons hefur verið styrtkur af McLaren-liðinu og Mercedes í mörg ár. Ross Brawn sagðist himinnlifandi yfir því að hafa skrifað undir samning við Hamilton. "Koma Hamiltons er vitnisburður um fyrirætlanir Mercedes í Formúlu 1."
"Ég held að saman geti Lewis og Nico orðið öflugasta og mest spennandi ökumannaparið í Formúlunni," sagði Brawn.
McLaren-liðið segir enn ætla að þrýsta á Hamilton um að vinna heimsmeistaratitilinn í ár. Hamilton á enn möguleika þó þeir séu litlir.
Sergio Perez tekur sæti Hamilton hjá McLaren

Í sumar hefur Perez verið orðaður við Ferrari en Luca di Montezemolo, framkvæmdastjóri Ferrari, hefur sagt Perez of ungan og reynslulítinn til að aka fyrir ítalska liðið.
McLaren er greinilega ekki á sama máli og segist geta nýtt hæfileika Mexíkóans. "Það var ótrúleg frammistaða hans á brautinni, þrjú verðlaunasæti og frábær hraðaisti hringur í Mónakó í ár sem sannfærðu okkur um að Sergio skortir ekkert hvað varðar hraða og skuldbindingu," sagði Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren í dag.
"Á meðan Sergio er að þróa hæfileika sína höldum við að hann geti boðið okkur upp á hraða heldur er hann einnig ólmur í að læra. Hann er klárlega framtíðarheimsmeistari."
Niki Lauda gerist yfirmaður hjá Mercedes

Mikið var rætt um framtíð Formúlu 1-liðs Mercedes í höfuðstöðvum bílaframleiðandans í Stuttgart í sumar því árangur liðsins virðist láta á sér standa.
Lauda er þegar farinn að stafa fyrir Mercedes-liðið og hafði um síðustu helgi milligöngu milli liðsins og Bernie Ecclestone um Concorde-samninginn sem öll keppnislið í Formúlu 1 verða að undirrita vilji þau keppa. Samningurinn fjallar að mestu um skyldur liðanna gagnvart FOM (Formula One Management, í eigu Ecclestone), FOM gagnvart liðunum og sjónvarpspeninganna dýrmætu.
Niki Lauda verður ekki í framvarðarsveit liðsins og hefur ekki hlutverk framkvæmdastjóra. "Lauda mun veita okkur úr djúpum viskubrunni sínum og miðla reynslu sinni sem formaður stjórnar liðsins."