Körfubolti

James fær að hafa það huggulegt á undirbúningstímabilinu

NBA-stjarnan LeBron James ætlar að fara sér hægt næstu vikur enda hefur hann nánast ekki tekið sér frí í tíu mánuði. James ætlar sér ekki að brenna út.

Lið hans, Miami Heat, spilar sinn fyrsta æfingaleik þann 7. október og James gerir fastlega ráð fyrir því að sleppa þeim leik.

Svo fer félagið í vikuferð til Kína þar sem áætlaðir eru tveir æfingaleikir gegn LA Clippers.

Þjálfarar Heat hafa ákveðið að spila James sem allra minnst á undirbúningstímabilinu svo hann mæti ferskur til leiks er tímabilið hefst.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×