Handbolti

Engir leikir hjá Eyjamönnum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Valli
Handknattleikssambandið hefur þurft að fresta tveimur leikjum í meistaraflokki karla og kvenna í dag þar sem ófært er frá Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ en vonir stóðu til að nóg væri að seinka leikjunum fram á kvöld.

Um er að ræða annars vegar leik Aftureldingar og ÍBV í N1 deild kvenna og hins vegar leikur ÍBV og Fjölnir í 1.deild karla.

Báðir leikirnir hafa verið tímasettir á morgun. Leikur Aftureldingar og ÍBV verður kl.13.30 og leikur ÍBV og Fjölnis kl.15.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×