Red Bull-liðið er heimsmeistari bílasmiða í Formúlu 1 eftir þetta mót í Bandaríkjunum. Ferrari hefði þurft að hafa báða ökumenn sína á verðlaunapalli til að eiga möguleika á að krækja í þann bikar í Brasilíu eftir viku.
Fernando Alonso, á Ferrari, varð þriðji í kappakstrinum og því verður háð úrslitabarátta um heimsmeistaratitill ökuþóra í brasilíska kappakstrinum eftir viku. Nú skilja 13 stig Vettel og Alonso að í titilbaráttunni.
Felipe Massa ók listavel í dag og náði fjórða sæti eftir að hafa færst aftur um fimm sæti á ráslínunni og ræst ellefti. Jenson Button ók McLaren-bílnum sínum yfir endalínuna í fimmta sæti. Button ók einnig mjög vel - hafði aðra keppnisáætlun en keppinautarnir og nýtti dekkin til fullnustu.
Lotus-félagarnir Kimi Raikkönen og Romain Grosjean háðu mikla baráttu undir lok kappakstursins og luku keppni í sjötta og sjöunda sæti á undan Nico Hulkenberg á Force India. Í síðustu tvö stigasætin settust Williams-ökuþórarnir Pastor Maldonado og Bruno Senna.
Hamilton, Vettel og Alonso hafa, þótt ótrúlegt megi virðast, aldrei staðið saman á verðlaunapalli þrátt fyrir að vera taldir bestu ökuþórarnir í Formúlu 1 eins og stendur. Allir eru heimsmeistarar.
Mark Webber, liðsfélagi Vettel hjá Red Bull, þurfti að hætta keppni eftir 16 hringi þegar rafallinn bilaði í bílnum hans. Red Bull-liðið hafði áhyggjur af því að rafallinn í bíl Vettel myndi bila líka. Vettel slapp hins vegar með skrekkinn í þetta skiptið.
Renault-vélaframleiðandinn, sem skaffar Red Bull meðal annars vélar, þurfti að nota rafala sömu gerðar og notaðir voru í Valencia og á Ítalíu. Þá þurfti Vettel að hætta keppni vegna sama vandamáls og Webber upplifði í dag.
Næsti kappakstur er eftir viku í Brasilíu. Það verður tuttugasti og síðasti kappakstur ársins. Eins og áður segir mun heimsmeistaratitill ökuþóra ráðast þar.
