Setja nýja línu af hálsfestum á markað í dag 29. nóvember 2012 13:00 Systurnar Kristín og Áslaug Friðriksdætur.
Vörulínan City Collection verður kynnt til sögunnar í dag klukkan 17 í verslun GK á Laugaveginum. Um er að ræða nútímalegar, grafískar og litríkar hálsfestar gerðar úr efnum tengdum borgarmenningu. Systurnar Kristín og Áslaug Friðjónsdætur höfðu oft talað um það að vinna saman. Síðastliðið vor létu þær verða af því og hafa þær nú hannað skartgripalínu undir nafninu Twin Within - Creative Jewelry sem seld verður í verslun GK á Laugaveginum og á heimasíðu þeirra twinwithin.com. "Þetta byrjaði allt á því að Áslaug systir, sem er myndlistarmaður, var að leita sér að efni í innsetningu sem hún var að vinna að. Hún fór á milli báta- og veiðibúða í leit að mismunandi efnum og sá þar alls kyns kaðla og slöngur sem hún fór svo að prufa sig áfram með," segir Kristín, sem er hönnuður. Kristín hefur starfað sem víóluleikari og verið viðloðandi tískugeirann en systir hennar er myndlistarmaður, búsett í Seattle. "Áslaug sýndi mér hugmyndir á Skype og þegar hún kom heim síðasta sumar þróuðum við heila vörulínu sem samanstendur af hálsfestum og kallast City Collection." Frumsýningarteiti Twin Within verður í verslun GK á Laugaveginum í dag frá 17 til 20. Hægt er að kynna sér atburðinn nánar hér á Facebook. "Kanilsnældur munu sjá um að þeyta skífum og léttar veigar verða í boði. Þá verðum við með sérstakt opnunartilboð á hálsfestunum."Hér eru systurnar Áslaug og Kristín Friðjónsdætur á verkstæðinu að útbúa hálsfestarnar, sem allar eru handgerðar. Mynd/AntonHálsfestarnar eru afar nútímalegar, grafískar og litríkar. Þær eru gerðar úr efnum tengdum borgarmenningu og litirnir minna jafnvel á borgarljós og næturlíf. Festarnar eru skírðar eftir nokkrum af þekkustu borgum heimsins; Ríó, Róm, Moskvu, París, Kaíró, Madrid, Helsinki og Berlín. Hálsfestarnar vísa þó líka til frumbyggja. "Innblásturinn sóttum við meðal annars í frumbyggjamenningu og heimsmenningu, bæði hvað varðar útlit og vinnslu. Skartgripir mismunandi ættbálka eru oft gerðir úr efnum sem þeir sækja af sínu nærsvæði og það má kannski segja að við séum að gera það sama."Hálsfestin Róm. Hálsfestarnar sækja nöfn sín til margra þekktustu borga heims og eru gerðar úr efnum tengdum borgarmenningu.
Mest lesið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Lífið samstarf Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Menning Laufey og Collab í eina sæng Lífið Fleiri fréttir Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira