Tónlist

Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Rapparinn Jay-Z með eiginkonu sinni, poppstjörnunni Beyoncé, og dóttur þeirra, Blue Ivy Carter.
Rapparinn Jay-Z með eiginkonu sinni, poppstjörnunni Beyoncé, og dóttur þeirra, Blue Ivy Carter. EPA

Rapparinn Jay-Z hefur haft umsjón með því að velja hvaða tónlistarmenn koma fram í hálfleikssýningu Ofurskálarinnar, úrslitaleik NFL-deildarinnar, síðan árið 2019 og er sagður hafa valið sjálfan sig til að koma fram á tónleikunum í ár í febrúar.

Dægurmálamiðillinn Puck News greindi frá þessum tíðindum fyrr í dag og hefur fjöldi fjölmiðla vestanhafs síðan greint frá fregnunum. 

Samkvæmt heimildum Puck News stóð valið á milli Jay-Z og popparanna Miley Cyrus og Justin Bieber áður en rapparinn valdi á endanum sjálfan sig.

Jay Z fagnar í ár þrjátíu ára afmæli fyrstu plötu sinnar, Reasonable Doubt.Getty

Fyrirtækið Roc Nation, sem er í eigu Jay-Z, gerði samning við NFL-deildina árið 2019 um að sjá um og pródúsera hálfleikssýningu Ofurskálarinnar og fær rapparinn greiddar fimm milljónir dala (um 600 milljónir króna) árlega fyrir verkið. Samningurinn var endurnýjaður árið 2024 og verður sýningin áfram á snærum rapparans til 2029.

Hvorki NFL-deildin né Roc Nation hafa þó brugðist við fréttunum þannig að fregnirnar eru enn óstaðfestar. 

Séu þær réttar má telja líklegt að Jay-Z muni ekki koma einn fram heldur fái til liðs við sig góða samstarfsfélaga á borð við Beyonce, Aliciu Keys, Justin Timberlake og Rihönnu, svo ekki sé minnst á Kanye West.

Hálfleikssýning Ofurskálarinnar er einn stærsti menningarviðburður ársins hvert ár og koma jafnan fram á tónleikunum tónlistarstjörnur á heimsmælikvarða. Tónlistarmaðurinn Bad Bunny tróð upp á sýningunni í febrúar á þessu ári ásamt Ricky Martin og Lady Gaga og á undan honum komu Kendrick Lamar, Usher og Rihanna árin þrjú þar á undan.


Tengdar fréttir

Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“

Það ríkti mikil eftirvænting fyrir hálfleikssýningu Ofurskálarinnar þar sem stórstjarnan Bad Bunny frá Púertó Ríkó var aðalnúmerið. Venju samkvæmt var öllu tjaldað til en Lady Gaga og Ricky Martin komu meðal annars einnig við sögu.

Drake fékk það óþvegið í hálfleikssýningu Kendrick Lamar

Bandaríski rapparinn Kendrick Lamar átti sviðið í hálfleik Ofurskálarinnar í nótt. Beðið var eftir komu hans með mikilli eftirvæntingu og kynnti stórleikarinn Samuel L. Jackson hann svo á svið í hlutverki bandaríska erkifrændans Sam.

Sjáðu glæsi­lega hálf­leiks­sýningu Us­her á Ofur­skálinni

Tónlistarmaðurinn Usher átti sviðið í hálfleik Ofurskálarinnar í nótt. Atriði hans var um fimmtán mínútur og náði hann á þeim tíma að koma að um tólf lögum. Hann fékk með sér ýmsa óvænta gesti til að flytja nokkra af sínum helstu slögurum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.