„Maladomestica 10 punktar“ Jón Baldvin Hannibalsson skrifar 23. febrúar 2012 06:00 Blaðamaður hringdi og sagðist hafa fyrir því heimildir að á morgun (23. feb. '12), birtist viðtal í Nýju lífi, þar sem ég væri borinn alvarlegum sökum um meinta „kynferðislega áreitni" við stúlku í fjölskyldu okkar Bryndísar. Ég baðst undan að svara óséðum ásökunum, en sendi ritstjóra Nýs lífs tölvupóst og krafðist þess að fá að sjá sakarefni, fyrir birtingu; og að fá ráðrúm til að svara í sama tölublaði. Það ber að mínu viti ekki vott um að sannleiksást hafi verið höfð að leiðarljósi við undirbúning málsins af blaðsins sjálfu, fyrst ekkert var sannreynt með því að gefa hinum ákærða kost á að bera hönd fyrir höfuð sér. Við nánari umhugsun er það mín niðurstaða að mér sé ekkert að vanbúnaði að upplýsa málið að óséðum kæruatriðum. Hér er um að ræða fjölskylduböl, sem illu heilli hefur eitrað andrúmsloftið innan stórfjölskyldu okkar Bryndísar í meira en áratug. Það er álitamál, hvert erindi fjölskylduböl á við almenning í gegnum fjölmiðla. En úr því að Guðrún Harðardóttir (systurdóttir Bryndísar) hefur kosið að fara þá leið meira en áratug eftir að málsatvik urðu, verður að taka því. Ég ætla að byrja á því að játa á mig sök. Ekki um kynferðislega áreitni – kærur um slíkt hafa verið bornar fram í tvígang og verið vísað á bug jafnharðan. En ég gerði mig sekan um dómgreindarbrest, sem lýsir sér í því að hafa orðið við tilmælum Guðrúnar Harðardóttur um að efna til bréfaskrifta við hana, sem aldrei skyldi verið hafa. Hún var skiptinemi í Venesúela, á 17da aldursári. Ég sendi henni bók eftir Vargas Llosa (sem fékk reyndar bókmenntaverðlaun Nóbels í fyrra ) og bréf með. Sagan er dæmisaga um samskipti Norður- Suður Ameríku. Bók og bréf eru á köflum erótísk. Sjálfur hefur höfundurinn kallað bók sína „Eró-pólitíska". Þetta bréf lýsir dómgreindarbresti mínum því að bréfið átti ekkert erindi við viðtakandann. Þetta hefur dregið dilk á eftir sér innan fjölskyldunnar og valdið þar óvild og jafnvel sorgarviðbrögðum árum saman. Ég hef ítrekað beðist fyrirgefningar á því – og endurtek þá afsökunarbeiðni hér með einu sinni enn. Kynferðisafbrot eru einatt þess eðlis að reynt er að hylma yfir þau og þagga þau niður innan fjölskyldna. Þetta mál snýst ekki um kynferðisafbrot af neinu tagi, svo sem staðfest er af réttarkerfinu. Það snýst um bréfasendingar milli lífsreynds manns og óþroskaðrar stúlku, þar sem bréfritarinn hefur ítrekað beðist afsökunar á dómgreindarbresti og boðist til að gera allt sem í hans valdi stendur til að bæta fyrir glöp sín. Ég hef boðist til að bera fram afsökunarbeiðni við fjölskyldu Guðrúnar Harðardóttur og að ræða málið við hvern þann, sem fjölskyldan kýs sér til fulltingis, sálfræðinga, félagsráðgjafa eða milligöngumenn innan fjölskyldunnar. Hér ríkir engin afneitun, engin þöggun og ekkert leyndarpukur. Hin umdeildu bréf hafa verið fjölfölduð og send til umfjöllunar fleiri sáttaaðilum en tölu verður á komið, innan og utan fjölskyldunnar. Fyrir nú utan þau afrit sem gengið hafa manna í millum í leynd og pukri. Allt án árangurs. Spurningin er: Hvaða erindi á þetta fjölskylduböl við almenning? Er einhver að nokkru bættari? Enginn er dómari í sjálfs sín sök. Ég læt því öðrum eftir að dæma um það. Fyrir jólin 2005 vildi Guðrún Harðardóttir láta á það reyna fyrir dómi, hvort þessi sendibréf gætu flokkast undir kynferðislega áreitni. Lögreglukæru var vísað frá sem tilefnislausri. Í ársbyrjun 2006 mælti saksóknari ríkisins fyrir um frekari rannsókn, sem stóð í hálft annað ár. Rannsóknarefnið var, hvort fyrir því fyndist lagabókstafur í Venesúelu (þar sem viðtakandi var skiptinemi) eða í BNA (þar sem bréfritari þá bjó), að einkabréf milli fullveðja einstaklinga teldust refsivert athæfi að lögum. Því var vísað frá. Um lögfræðilega hlið málsins þarf því ekki að deila. Heimilisbölið er þyngra en tárum taki eins og Brynjólfur biskup komst að orði á sinni tíð. Öllum verður okkur á í lífinu. Öll þurfum við einhvern tíma á fyrirgefningu að halda. Ég harma það alla daga að hafa valdið fólki sem mér þykir vænt um í minni nánustu fjölskyldu sárindum og hugarangri að ósekju. Ég hef viðurkennt mína sök og beðist fyrirgefningar. Nú, þegar fjölskylduraunir hafa verið bornar á torg, endurtek ég afsökunarbeiðni mína hér með opinberlega. Réttarkerfið hefur kveðið upp sinn dóm, nú hefur málið verið lagt í dóm almenningsálitsins. Þeim dómi verða allir að hlíta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Baldvin Hannibalsson Tengdar fréttir Jón Baldvin krefst þess að sjá umfjöllun Nýs Lífs - íhugar ella lögbann Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra krefst þess að fá að sjá umfjöllun Nýs Lífs um hann sem birtist í nýjasta tölublaðinu sem kemur út á morgun. Hann segir ennfremur skýlausa kröfu að hann fái að svara fyrir sig í sama blaði. Ella íhugi hann að sækjast eftir lögbanni á dreifingu þess. Þetta staðfestir Þóra Tómasdóttir ritstjóri tímaritsins í samtali við fréttastofu en hún hefur ekki svarað kröfu Jóns Baldvins. 22. febrúar 2012 16:33 Þóra: Umfjöllunin krafðist ekki skýringa Jóns Baldvins Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýs Lífs segir að umfjöllun nýjasta tölublaðsins er varðar Jón Baldvin Hannibalsson og bréfaskriftir hans til unglingsstúlku, byggi á gögnum úr lögreglumáli, meðal annars bréfum sem hann hefur gengist við að hafa ritað. Umfjöllunin hafi því að hennar mati ekki krafist viðbragða af hans hálfu. 23. febrúar 2012 09:14 Bréf Jóns Baldvins ollu reiði, sorg og biturð Guðrún Harðardóttir segir að bréfin sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi henni á sínum tíma hafi gert hana hrædda og ástæða þess að hún hefur kosið að greina frá þeim nú sé sú að hún hafi fengið nóg. Guðrún segir í viðtali í nýjasta tölublaði Nýs lífs, þar sem bréf Jóns Baldvins eru birt, að hún hafi reglulega fundið fyrir reiði, sorg og biturð, og því hafi hún kosið að koma þessu frá sér. 23. febrúar 2012 10:25 Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfunum Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra , biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent 16 ára frænku eiginkonu sinnar bréf, sem á köflum voru erótísk. Jafnframt erótíska bók eftir Vargas Llosa. 23. febrúar 2012 07:32 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Blaðamaður hringdi og sagðist hafa fyrir því heimildir að á morgun (23. feb. '12), birtist viðtal í Nýju lífi, þar sem ég væri borinn alvarlegum sökum um meinta „kynferðislega áreitni" við stúlku í fjölskyldu okkar Bryndísar. Ég baðst undan að svara óséðum ásökunum, en sendi ritstjóra Nýs lífs tölvupóst og krafðist þess að fá að sjá sakarefni, fyrir birtingu; og að fá ráðrúm til að svara í sama tölublaði. Það ber að mínu viti ekki vott um að sannleiksást hafi verið höfð að leiðarljósi við undirbúning málsins af blaðsins sjálfu, fyrst ekkert var sannreynt með því að gefa hinum ákærða kost á að bera hönd fyrir höfuð sér. Við nánari umhugsun er það mín niðurstaða að mér sé ekkert að vanbúnaði að upplýsa málið að óséðum kæruatriðum. Hér er um að ræða fjölskylduböl, sem illu heilli hefur eitrað andrúmsloftið innan stórfjölskyldu okkar Bryndísar í meira en áratug. Það er álitamál, hvert erindi fjölskylduböl á við almenning í gegnum fjölmiðla. En úr því að Guðrún Harðardóttir (systurdóttir Bryndísar) hefur kosið að fara þá leið meira en áratug eftir að málsatvik urðu, verður að taka því. Ég ætla að byrja á því að játa á mig sök. Ekki um kynferðislega áreitni – kærur um slíkt hafa verið bornar fram í tvígang og verið vísað á bug jafnharðan. En ég gerði mig sekan um dómgreindarbrest, sem lýsir sér í því að hafa orðið við tilmælum Guðrúnar Harðardóttur um að efna til bréfaskrifta við hana, sem aldrei skyldi verið hafa. Hún var skiptinemi í Venesúela, á 17da aldursári. Ég sendi henni bók eftir Vargas Llosa (sem fékk reyndar bókmenntaverðlaun Nóbels í fyrra ) og bréf með. Sagan er dæmisaga um samskipti Norður- Suður Ameríku. Bók og bréf eru á köflum erótísk. Sjálfur hefur höfundurinn kallað bók sína „Eró-pólitíska". Þetta bréf lýsir dómgreindarbresti mínum því að bréfið átti ekkert erindi við viðtakandann. Þetta hefur dregið dilk á eftir sér innan fjölskyldunnar og valdið þar óvild og jafnvel sorgarviðbrögðum árum saman. Ég hef ítrekað beðist fyrirgefningar á því – og endurtek þá afsökunarbeiðni hér með einu sinni enn. Kynferðisafbrot eru einatt þess eðlis að reynt er að hylma yfir þau og þagga þau niður innan fjölskyldna. Þetta mál snýst ekki um kynferðisafbrot af neinu tagi, svo sem staðfest er af réttarkerfinu. Það snýst um bréfasendingar milli lífsreynds manns og óþroskaðrar stúlku, þar sem bréfritarinn hefur ítrekað beðist afsökunar á dómgreindarbresti og boðist til að gera allt sem í hans valdi stendur til að bæta fyrir glöp sín. Ég hef boðist til að bera fram afsökunarbeiðni við fjölskyldu Guðrúnar Harðardóttur og að ræða málið við hvern þann, sem fjölskyldan kýs sér til fulltingis, sálfræðinga, félagsráðgjafa eða milligöngumenn innan fjölskyldunnar. Hér ríkir engin afneitun, engin þöggun og ekkert leyndarpukur. Hin umdeildu bréf hafa verið fjölfölduð og send til umfjöllunar fleiri sáttaaðilum en tölu verður á komið, innan og utan fjölskyldunnar. Fyrir nú utan þau afrit sem gengið hafa manna í millum í leynd og pukri. Allt án árangurs. Spurningin er: Hvaða erindi á þetta fjölskylduböl við almenning? Er einhver að nokkru bættari? Enginn er dómari í sjálfs sín sök. Ég læt því öðrum eftir að dæma um það. Fyrir jólin 2005 vildi Guðrún Harðardóttir láta á það reyna fyrir dómi, hvort þessi sendibréf gætu flokkast undir kynferðislega áreitni. Lögreglukæru var vísað frá sem tilefnislausri. Í ársbyrjun 2006 mælti saksóknari ríkisins fyrir um frekari rannsókn, sem stóð í hálft annað ár. Rannsóknarefnið var, hvort fyrir því fyndist lagabókstafur í Venesúelu (þar sem viðtakandi var skiptinemi) eða í BNA (þar sem bréfritari þá bjó), að einkabréf milli fullveðja einstaklinga teldust refsivert athæfi að lögum. Því var vísað frá. Um lögfræðilega hlið málsins þarf því ekki að deila. Heimilisbölið er þyngra en tárum taki eins og Brynjólfur biskup komst að orði á sinni tíð. Öllum verður okkur á í lífinu. Öll þurfum við einhvern tíma á fyrirgefningu að halda. Ég harma það alla daga að hafa valdið fólki sem mér þykir vænt um í minni nánustu fjölskyldu sárindum og hugarangri að ósekju. Ég hef viðurkennt mína sök og beðist fyrirgefningar. Nú, þegar fjölskylduraunir hafa verið bornar á torg, endurtek ég afsökunarbeiðni mína hér með opinberlega. Réttarkerfið hefur kveðið upp sinn dóm, nú hefur málið verið lagt í dóm almenningsálitsins. Þeim dómi verða allir að hlíta.
Jón Baldvin krefst þess að sjá umfjöllun Nýs Lífs - íhugar ella lögbann Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra krefst þess að fá að sjá umfjöllun Nýs Lífs um hann sem birtist í nýjasta tölublaðinu sem kemur út á morgun. Hann segir ennfremur skýlausa kröfu að hann fái að svara fyrir sig í sama blaði. Ella íhugi hann að sækjast eftir lögbanni á dreifingu þess. Þetta staðfestir Þóra Tómasdóttir ritstjóri tímaritsins í samtali við fréttastofu en hún hefur ekki svarað kröfu Jóns Baldvins. 22. febrúar 2012 16:33
Þóra: Umfjöllunin krafðist ekki skýringa Jóns Baldvins Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýs Lífs segir að umfjöllun nýjasta tölublaðsins er varðar Jón Baldvin Hannibalsson og bréfaskriftir hans til unglingsstúlku, byggi á gögnum úr lögreglumáli, meðal annars bréfum sem hann hefur gengist við að hafa ritað. Umfjöllunin hafi því að hennar mati ekki krafist viðbragða af hans hálfu. 23. febrúar 2012 09:14
Bréf Jóns Baldvins ollu reiði, sorg og biturð Guðrún Harðardóttir segir að bréfin sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi henni á sínum tíma hafi gert hana hrædda og ástæða þess að hún hefur kosið að greina frá þeim nú sé sú að hún hafi fengið nóg. Guðrún segir í viðtali í nýjasta tölublaði Nýs lífs, þar sem bréf Jóns Baldvins eru birt, að hún hafi reglulega fundið fyrir reiði, sorg og biturð, og því hafi hún kosið að koma þessu frá sér. 23. febrúar 2012 10:25
Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfunum Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra , biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent 16 ára frænku eiginkonu sinnar bréf, sem á köflum voru erótísk. Jafnframt erótíska bók eftir Vargas Llosa. 23. febrúar 2012 07:32
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun