Ég er nammigrís 25. febrúar 2012 06:00 Dagur 1 Kæra dagbók. Ég heiti Lísa og er nammigrís. Ég elska að borða nammi og drekka gos. Foreldrar mínir reyna stundum að grípa í taumana og hafa hemil á mér en ég er lagin við að ná mínu fram. Til dæmis um daginn þegar mamma var úti að versla og pabbi að horfa á enska boltann. Ég fór að suða í pabba um sælgæti en hann var svo æstur yfir leiknum að hann veitti mér enga athygli. Ég hélt áfram því ég vissi af góðgæti uppi í eldhússkáp en pabbi virtist algerlega heyrnarlaus. Þegar fyrri hálfleikur var að enda gat ég ekki meir. Tárin tóku að streyma niður kinnar mínar. Að lokum var ég farin að hágráta og eftir því sem pabbi hækkaði í sjónvarpstækinu hækkaði grátur minn en skyndilega stökk hann fram í eldhús og kom til baka með fullan poka af súkkulaði og karamellum. Ég brosti gegnum tárin.Dagur 2 Afi og amma koma stundum í heimsókn. Pabbi fussar og segir að amma sé með nefið ofan í öllu. Til dæmis þegar hún opnar ísskápinn og dæsir yfir öllum tveggja lítra gosflöskunum sem þar blasa við. Hún segir að pabbi og mamma séu af goskynslóðinni. Þeim væri nær að drekka blessaða mjólkina og styrkja íslenskan landbúnað í stað þess að kaupa þetta ropvatn sem eyðileggur tennurnar í fólki. Amma er alltaf að hugsa um heilsuna og hleypur maraþon á hverju ári. Afi er miklu rólegri. Við horfum saman á vídeó og hann laumar að mér brjóstsykursmola. „Láttu hana ömmu þína ekki vita af þessu" hvíslar hann.Dagur 3 Ég er nýkomin úr skólanum og er ein heima. Ég er svona lyklabarn. Ég er svöng og mig langar í kremkexið sem er uppi í eldhússkáp. Eftir smá stund er ég orðin södd og glöð, með súkkulaðikrem út á kinnum og kexmylsnu út um allt eldhúsgólf. Ég má ekki fá gos í dag, en það sér enginn þótt það vanti smá. Með einhverju þarf að skola kexinu niður. Á leiðinni inn í herbergið mitt renni ég hendinni ofan í skál og næli mér í súkkulaðikúlur.Dagur 4 Ég fór til tannlæknis í dag. Pabbi er í sjokki og mamma í taugaáfalli eftir að hafa fengið reikninginn. Það verða víst ekki fleiri verslunarferðir hjá henni á næstunni. Ég er með 3 skemmdar tennur. Þegar tannfræðingurinn,sem heitir Lilja, fór að rekja garnirnar úr mömmu hvernig mataræði fjölskyldunnar væri háttað hélt ég að hún þyrfti áfallahjálp. „Þetta er hræðilegt" hrópaði hún. Við fengum síðan leiðbeiningar í munnhirðu og fræðslu um mataræði: „Ekki borða sætindi oftar en einu sinni í viku. Ákveðið hvaða sælgæti og hversu mikið þið ætlið að kaupa og borðið á sem skemmstum tíma. Burstið á eftir með flúortannkremi. Tennurnar þurfa hvíld á milli máltíða. Ef maður er að farast úr hungri er gott að fá sér eitthvað hollt eins og ávöxt, brauðsneið með hollu áleggi eða súrmjólk. Í mjólkurvörum er oft viðbættur sykur. Lærið að lesa utan á matvörur og kanna sykurinnihald þeirra. Tennurnar á að bursta tvisvar á dag. Börn þurfa hjálp við tannburstun fram að 10 ára aldri og eftir það gott aðhald og eftirlit frá foreldrum." Eftir að tannfræðingurinn hafði sýnt okkur réttu handtökin við tannburstunina dæsti mamma rauð í framan og sagði að þetta hefði hún þurft að læra fyrir 20 árum.Dagur 5 Við erum ennþá að melta það sem tannfræðingurinn fræddi okkur um. „Sykraðir gosdrykkir eru óhollir fyrir tennurnar. Sama gildir um ávaxtasafa og djús. Einnig ber að varast ósykruðu drykkina því að rotvarnarefnin í þeim leysa upp glerunginn. Ef alltaf er verið að súpa á þessu sulli liggja tennurnar alla daga í sykri og glerungseyðandi rotvarnarefnum." Nú er komið kvöld og rólegt yfir öllu. Mamma tók æðiskast í eldhúsinu í dag. Allir skápar eru hálftómir. Kex, sælgæti, snakk og önnur óhollusta horfin. „Nóg pláss. Ekki þörf á nýrri eldhúsinnréttingu" segir hún við pabba. Við höfum ákveðið að hafa nammidag á laugardögum. Pabbi horfir á sig á hlið í speglinum og strýkur magann. „Ég keypti mér kort í ræktina í dag" segir hann og hverfur út um dyrnar. Ég á tíma hjá tannlækninum á morgun. Ég kvíði svolítið fyrir. Mamma er sest niður með prjónana og horfir á sjónvarpið. Skyldi hún hafa hent öllum karamellunum? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Mest lesið Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar