Fjórtán dómarar í Wacken 29. febrúar 2012 15:00 Blaðamaðurinn Arnar Eggert Thoroddsen og Krummi verða á meðal fjórtán dómara á Wacken.
Fjórtán dómarar verða í hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle á Nasa á laugardaginn. Níu þeirra eru erlendir. Níu erlendir dómarar verða í hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle Iceland sem verður haldin á Nasa á laugardagskvöld í fjórða sinn. Tveir þeirra koma frá bresku og þýsku útgáfu tímaritsins Metal Hammer og tveir til viðbótar eru sænskir blaðamenn. Fimm íslenskir dómarar verða einnig í hópnum, eða blaðamaðurinn Arnar Eggert Thoroddsen, Sigvaldi Jónsson af Rás 2, Krummi í Mínus, Kiddi í Smekkleysu og Stefán Magnússon frá Eistnaflugi. Alls verða dómararnir því fjórtán talsins sem er mesti fjöldinn til þessa. Sigursveitin heldur utan til Þýskalands þar sem lokakeppnin fer fram í ágúst á Wacken Open Air, sem er stærsta þungarokkshátíð veraldar. Í fyrra var Wacken Metal Battle haldin á Sódómu en í þetta sinn verður hún á Nasa þar sem plássið er töluvert meira. Skipuleggjandinn Þorsteinn Kolbeinsson lofar því að keppnin verði sú flottasta til þessa og er alveg sama þótt hann nái ekki að fylla staðinn. „Ég hef engar áhyggjur af því að það verði ekki flott stemning og góð mæting," segir hann. Til að tryggja góðan hljóm á Nasa mun hljóðmaður frá þýsku Wacken-hátíðinni stjórna tökkunum í fyrsta sinn. Húsið opnar kl. 19.30 og klukkutíma síðar hefst rokkveislan. Sex hljómsveitir taka þátt og þrjár gestasveitir spila einnig, eða Bastard, Atrum, sem vann keppnina í fyrra, og Sólstafir, sem stígur síðust á svið. „Það er mikil eftirvænting hjá blaðamönnum yfir þeim," segir Þorsteinn um Sólstafir. freyr@frettabladid.is
Tónlist Mest lesið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Alma stolt af syninum Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira