FME hefur lokið rannsókn 149 mála 23. mars 2012 07:00
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lokið rannsóknum á 149 málum tengdum bankahruninu en alls hefur FME tekið 191 mál til rannsóknar. Stefnt er að því að rannsóknum á öllum málunum verði lokið í árslok. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrsta eintaki Fjármála, nýs vefrits FME. Í ritinu er að finna grein um rannsóknir FME á aðdraganda bankahrunsins. Þar segir að stuttu eftir hrun hafi sérstakur rannsóknarhópur verið settur á laggirnar innan FME til að sinna eingöngu rannsóknum tengdum hruninu. Hafi rannsóknirnar síðan aukist að umfangi og nú eru tveir rannsóknarhópar að störfum sem í starfa samtals fjórtán manns. Þá kemur fram í ritinu að þau lögbrot sem rannsakendur hafa hnotið um ná yfir nánast alla flokka meintra efnahagsbrota. Þau brot sem kærð hafi verið til embættis sérstaks saksóknara séu einkum brot sem varða meinta markaðsmisnotkun og innherjasvik. Þá hefur FME jafnframt kært brot á lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um starfsemi lífeyrissjóða og lögum um vátryggingafélög.- mþl
Fréttir Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira