Með fyrsta skólaverkefnið sitt á Cannes-hátíðina 14. maí 2012 15:00 Jasmin Rexhepi, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands, er á leið með skólaverkefni sitt á kvikmyndahátíðina í Cannes. fréttablaðið/stefán
Jasmin Rexhepi, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands, er á leið með fyrsta skólaverkefni sitt á kvikmyndahátíðina í Cannes á miðvikudaginn næsta. Kvikmyndin á að gerast í Frakklandi en var tekin upp á heimili Jasmin í Reykjavík. Jasmin er frá Kósóvó en flutti hingað til lands fyrir fjórum árum síðan og er nú að ljúka sínu öðru ári við Kvikmyndaskólann. Stuttmynd hans, The Forgotten Monique, verður sýnd í Short Corner-flokknum í Cannes sem er sérstaklega ætlaður stuttmyndum. „Það er gamall draumur minn að sýna á Cannes og því ákvað ég að sækja um á hátíðinni um leið og myndin var tilbúin. Ég hef fengið einhverja fjárhagsaðstoð sem gerir mér kleift að komast út og ég er orðinn mjög spenntur fyrir ferðinni," útskýrir Jasmin sem hyggst nýta tækifærið til að mynda sambönd við framleiðendur og aðra kvikmyndagerðamenn. Jasmin kveðst vera hrifinn af franskri kvikmyndagerð sem hann lýsir sem mjög listrænni og þangað sótti hann innblástur fyrir The Forgotten Monique. „Myndin er algjörlega án samtala og mér fannst einhvern veginn passa betur ef sögumaðurinn væri franskur. Aðalleikkona myndarinnar er íslensk en með mjög franskt útlit og sá sem tók að sér að tala yfir myndina er Frakki sem er búsettur hér á landi. Ég þurfti svo að breyta íbúðinni minni þannig að hún liti út fyrir að vera frönsk og það var ekki auðvelt verk. Ég eyddi miklum tíma í að finna alls kyns hluti er gætu talist franskir í útliti og lagði mjög mikla áherslu á að smáatriðin væru í lagi og þannig gekk þetta upp." Jasmin hyggur á áframhaldandi störf innan íslenska kvikmyndageirans í framtíðinni. „Planið er að vinna áfram hér enda er Ísland orðið mitt land og hér vil ég vera," segir hann að lokum. sara@frettabladid.is
Menning Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira