Handbolti

Ramune: Nýtt upphaf fyrir mig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ramune er hér í leik með Haukum en þar vann hún fjölmarga titla áður en hún hélt til Noregs árið 2010.fréttablaðið/anton
Ramune er hér í leik með Haukum en þar vann hún fjölmarga titla áður en hún hélt til Noregs árið 2010.fréttablaðið/anton
Handboltakonan Ramune Pekarskyte fær á næstunni íslenskan ríkisborgararétt og verður hún gjaldgeng í íslenska landsliðið síðar á árinu. Hún er 31 árs gömul og stefnir á að setjast að á Íslandi eftir að handboltaferlinum lýkur.

Stórskyttan Ramune Pekarskyte fær íslenskan ríkisborgararétt ef Alþingi samþykkir lagafrumvarp allsherjar- og menntamálanefndar um veitingu ríkisborgararéttar. Tillagan var á dagskrá þingsins í gær og fær væntanlega skjóta afgreiðslu.

Tíðindin þykja góð fyrir íslenskan handknattleik og ekki síst kvennalandsliðið í handbolta enda Ramune öflugur leikmaður.

„Hún er einn besti sóknarmaðurinn í norsku deildinni, sem er ásamt þeirri dönsku besta deild heims," sagði landsliðsþjálfarinn Ágúst Þór Jóhannsson sem hefur þjálfað hana hjá Levanger í Noregi undanfarin tvö ár.

Ágúst hætti reyndar með félagið undir lok tímabilsins en Ramune, sem er fædd í Litháen, framlengdi samning sinn um tvö ár.

„Ég er mjög spennt fyrir þessu enda nýtt upphaf og nýtt líf fyrir mig," sagði Ramune á góðri íslensku þegar Fréttablaðið náði tali af henni í gær.

Hún spilaði með Haukum í átta ár áður en Ágúst fékk hana til Noregs fyrir tæpum tveimur árum síðan. Hún verður 32 ára síðar á þessu ári og á því mörg góð ár eftir í boltanum.

Mamma ekki ánægð í fyrstu„Ég ætlaði fyrst að sækja um árið 2005 en mamma mín var reyndar ekki ánægð með það og því ákvað ég að bíða," sagði hún í léttum dúr. „En nú vildi ég kýla á þetta og ákvað að senda inn umsókn."

Samkvæmt reglum Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, mega leikmenn ekki spila með landsliði í þrjú ár áður en þau verða gjaldgeng í annað landslið. Gildir þá einu hvenær viðkomandi fékk nýjan ríkisborgararétt. Ramune lék hins vegar síðast með landsliði Litháen fyrir tæpum þremur árum og verður hún gjaldgeng með íslenska landsliðinu í október á þessu ári.

„Ég hef reyndar verið meidd síðan í desember en er að æfa núna. Ef ég næ að spila vel í haust og Ágúst vill fá mig í landsliðið, þá kem ég," segir hún.

Ramune sér fyrir sér að hún muni spila aftur hér á landi. „Ég verð allavega í eitt ár til viðbótar í Noregi en svo sé ég til."

Ágúst segir að það sé ekki sjálfgefið að hún verði valin í landsliðið. „Hún verður auðvitað að standa sig til þess, alveg eins og allir leikmenn. En ef allt er eðlilegt þá á hún ágætis möguleika á því," sagði hann.

„Hingað til hefur hún átt frábæran feril. Hún spilaði mjög vel með Haukum sem og í þessi tvö ár sem ég þjálfaði hana í Noregi. Hún var næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar í fyrra sem segir ýmislegt. Hún er frábær skytta sem myndi auka breidd liðsins mikið."

Sá um þetta sjálfÁgúst segist aðspurður ekki hafa haft hönd í bagga í þessu ferli. „Hún sá sjálf um alla pappírsvinnu og þetta var frá henni komið – enda er hún mikill Íslendingur í sér. Hún á íbúð hér á landi, kann tungumálið og ætlar sér að setjast að á Íslandi. Þá lá beinast við að hún myndi sækja um ríkisborgararétt," segir hann.

„En ég hafði auðvitað ekkert á móti því að hún myndi sækja um. Þetta er frábær handboltamaður og góð manneskja þar að auki."

Það gæti því farið svo að Ramune spili með íslenska landsliðinu á EM í desember næstkomandi. Ísland komst reyndar ekki áfram úr undankeppninni en gæti fengið úthlutað sæti í keppninni síðar í vikunni. Holland átti að halda keppnina en gaf óvænt mótið frá sér fyrr í mánuðinum. Ef ákveðið verður að halda mótið í landi sem hafði þegar tryggt sér þátttökurétt í undankeppninni er góður möguleiki á því að Ísland fái sextánda og síðasta sætið á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×