Gefur loksins út eigin plötu 16. júní 2012 18:00 fyrsta platan Steinar Berg hefur gefið út sína fyrstu plötu með hljómsveitinni Grasösnum. fréttablaðið/anton „
Ég er búinn að gefa út mörg hundruð plötur með öðrum en ég hef ekki áður gefið út plötu með sjálfum mér," segir Steinar Berg Ísleifsson. Hann hefur sent frá sér fimm laga plötuna Stutt í brosið með hljómsveitinni Grasösnum. Hún er skipuð tónlistarmönnum frá Vesturlandi en í Borgarfirði rekur Steinar Berg einmitt ferðaþjónustuna Fossatún. Steinar Berg stýrði útgáfunni Steinar hér á árum áður, sem síðar breyttist í Spor og Skífuna. Hann er því enginn nýgræðingur í bransanum. Draumur um að gefa út eigin plötu er samt nýtilkominn. „Þetta kom bara til af því að ég keypti mér gítar. Síðan var það svoleiðis í hruninu að síminn hætti að hringja og ég datt í þennan gír. Ég fór í gítartíma í Borgarnesi og uppgötvaði að þarna eru ágætis tónlistarmenn." Tónlistin sem Grasasnar spila er sótt í grunn írskrar tónlistar og kántrítónlistar og var allur söngur og hljóðfæraleikur tekinn upp í einu. Lögin koma úr ýmsum áttum en eiga það sameiginlegt að fjalla um eða vekja bros. Steinar fékk marga vini sína úr bransanum til að spila með sér á plötunni, þar á meðal Jakob Frímann Magnússon, Guðmund Steingrímsson, Margréti Eir Hjartardóttur, Helga P. og Dan Cassidy. Steinar reiknar með að spila á tónleikum með Grasösnum í haust þegar hægist um í ferðamennskunni. Líklega munu þeir félagar samt spila eitthvað í Fossatúni í sumar fyrir gesti og gangandi. - fb
Lífið Tónlist Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira