Mannætusöngleikur verðlaunaður í New York 23. júní 2012 10:00 „
Ég held að þetta séu ein stærstu verðlaun sem íslensk leikhúsframleiðsla hefur fengið," segir Óskar Eiríksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins en framleiðsla þeirra, söngleikurinn Silence!, var í vikunni kosinn besti söngleikur í New York af The Broadway Alliance. Söngleikurinn er byggður á spennumyndinni Silence of the Lambs, eða Lömbin þagna sem fjallaði um mannætuna Hannibal Lecter, og hefur vakið mikla athygli vestanhafs. The Broadway Alliance verðlaunar leikhúsuppfærslur sem ekki hafa náð á Broadway enn þá en áður hafa sýningar eins og Little Shop of Horrors, Stomp og Blue Man Group unnið verðlaunin og í kjölfarið fengið líf á stóra sviðinu á Broadway. Óskar segir þetta vera mikinn heiður fyrir Leikhúsmógulinn. „Söngleikurinn hefur nú gengið fyrir fullu húsi í heilt ár í New York og erum við að flytja sýningu frá Greenwich Village upp til Mid Town í stærra húsnæði vegna velgengninnar," segir Óskar en flestar stjörnurnar úr spennumyndinni frægu hafa látið sjá sig á sýningunni. „Jodie Foster, Anthony Heald og leikstjórinn Jonathan Demme hafa öll verið meðal áhorfenda og sýningin nú vakið athygli allra stærstu leikhúsframleiðanda í heimi sem er mjög gaman."Veggspjald Silence!Þetta eru ekki einu verðlaunin sem Silence! hefur unnið því nýverið vann söngleikurinn heil fjögur verðlaun á Tina Awards, sem einnig eru tileinkuð minni uppfærslum í New York. Leikhúsmógullinn á heimsrétt á Silence! og vinnur nú að því að opna sýninguna í London, Jóhannesarborg, Los Angeles, Chicago og Sidney. „Við opnum í Los Angeles strax í ágúst en í hinum borgunum vonandi á næsta ári," segir Óskar sem bindur einnig vonir við að þessi grínsöngleikur, byggður á spennumyndinni um mannætuna Hannibal Lecter, verði settur upp á Íslandi í framtíðinni. Leikhúsmógullinn hefur verið starfræktur í 12 ár og hefur meðal annars séð um rekstur Gamla bíós. „Við höfum verið í stöðugri útrás í 12 ár og alltaf á sömu kennitölunni sem er jákvætt." alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo Lífið Fréttatía vikunnar: Landsfundur, körfubolti og geimferðir Lífið Dýrmætt að fá að hitta hetjurnar á hinum enda línunnar Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lífið samstarf Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira