Haraldur og Signý Íslandsmeistarar Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 25. júní 2012 07:30 Íslandsmeistarar. Haraldur Franklín og Signý með verðlaunagripi sína eftir Íslandsmótið í Kópavogi í gær.fréttablaðið/anton
Veðrið lék við kylfinga í Leirdalnum í Kópavogi um helgina þegar Íslandsmótið í holukeppni fór fram. Margar skemmtilegar rimmur fóru fram en Haraldur Franklín Magnús og Signý Arnórsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar. „Besta höggið sem ég sló á þessu móti var gegn Andra Þór Björnssyni í átta manna úrslitunum í gær, þar sem ég sló með 4-járni á 14. holu úr einhverjum trjárunna. Og svo var vippið á 12. gegn Hlyni Geir í úrslitaleiknum í dag einnig frábært, þar setti ég boltann í holu. Það geta allir unnið alla í holukeppni, og það sýndi sig á þessu móti," sagði Haraldur Franklín sem lagði Hlyn Geir Hjartarson 2/0 í úrslitaleiknum. Haraldur Franklín er 21 árs gamall og hann er með skýr markmið hvað varðar golfið og framtíðina. Hann ætlar sér að taka 4 til 5 ár að ná markmiðum sínum. „Ég vinn í Iðnó á kvöldin en annars er ég bara að æfa alla daga eins mikið og ég get. Brynjar Eldon Geirsson er þjálfarinn minn og við erum búnir að setja upp plan fyrir næstu ár. Og atvinnumennskan er markmiðið. Ég fer í háskóla í haust í Bandaríkjunum og það er fyrsta skrefið á þessari leið. Vonandi tekst mér að komast í íslenska landsliðið og fá einhver verkefni í sumar og haust." Signý fagnaði sínum öðrum Íslandsmeistaratitli í holukeppni á ferlinum með 2/1 sigri á Önnu Sólveigu Snorradóttur sem er einnig úr Keili. „Þessi úrslitaleikur var spennandi en ég hafði kannski aðeins meiri keppnisreynslu þarna undir lokin. Það er miklu meiri breidd í kvennagolfinu en áður og margir sem geta unnið mótin," sagði Signý en hún ætlar að flýta sér hægt hvað varðar atvinnumennskudraumana. „Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera, en mér finnst ekki heillandi að reyna við atvinnumennskuna ef það er eintómt fjárhagslegt basl." Selfyssingurinn Hlynur Geir Hjartarson varð að sætta sig við silfur en hann lagði Birgi Leif Hafþórsson í undanúrslitum. „Það eru mörg hundruð góðir kylfingar á Íslandi og ef maður er í verðlaunasæti þá er maður að standa sig. Ég er ekkert að svekkja mig á því að lenda í öðru sæti," sagði Hlynur. „Þetta var svakalegur leikur og ég held að þeir sem fylgdust með okkur hafi haft gaman að þessu. Það féllu ekki margar holur, og við skiptumst á að vinna holurnar. Þetta var góður leikur,“ bætti Hlynur Geir við en hann varð Íslandsmeistari í holukeppni árið 2008. Birgir Leifur Hafþórsson var nokkuð brattur þó svo honum hafi ekki tekist að vinna mótið. „Þetta var fínt mót þrátt fyrir að ég hafi endað í þriðja sæti. Hver einasti leikur í þessu móti var erfiður og ungu kylfingarnir eru að stimpla sig inn – þeir eru bara mjög góðir,“ sagði Birgir Leifur. „Þetta er eitt erfiðasta mótið á árinu, og sérstaklega fyrir okkur „gömlu“ mennina, 36 holur á dag, þrjá daga í röð er heilmikið, en þetta er alltaf jafn skemmtilegt,“ bætti Birgir við.
Golf Mest lesið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Blikar áfram með fullt hús stiga Körfubolti Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Körfubolti „Bara feginn að við fundum þó leið“ Körfubolti ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum Körfubolti Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Enski boltinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ Handbolti Sandra hélt áfram að fagna eftir landsleikina Fótbolti Fleiri fréttir Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Barnabarn Donalds Trump keppir á LPGA-mótaröðinni Mun líklegast aldrei komast yfir þetta Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli Íslenski Tígurinn vann æsispennandi mót í Mississippi Uppfyllti óskina og fékk soninn í fangið á átjándu Rory McIlroy vill verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu Tiger Woods í enn eina bakaðgerðina Segir að stuðningsmenn Bandaríkjanna hafi farið yfir strikið Sló golfhögg með krókódíl rétt fyrir aftan sig „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Sjá meira