
Landspítalinn og Hringbraut
Ég er ósammála þessari skoðun og tel að það væri óðs manns æði að byggja upp nýjan spítala frá grunni fyrir utan borgina. Það yrði óheyrilega dýrt og gerði það að verkum að nánast enginn af hinum fjölmörgu starfsmönnum spítalans kæmist í vinnuna nema á einkabíl. Sú ráðstöfun yrði til þess að gera Reykjavík að enn meiri bílaborg en hún er.
Hringbrautarlóðin liggur betur en nokkur önnur hugsanleg spítalalóð við umferðinni í borginni. Þar mætast tvær meginumferðaræðar: Bústaðavegur/Snorrabraut og Miklabraut/Hringbraut. Þar að auki liggja átta strætisvagnaleiðir um Hringbraut. Þær eru hvergi fleiri í borginni.
Það sem meira er, Strætó hefur tekið þá stefnu, í samvinnu við borgina, að gamla BSÍ leysi Hlemm af sem meginskiptistöð fyrir strætó auk þess sem þar verði samgöngumiðstöð. Reykjavík hefur undanfarna áratugi þróast sem borg fyrir bíla. Borgarstjórnin sem nú er vill vinda ofan af þeirri þróun og gera Reykjavík að borg fyrir fólk. Í drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi fyrir Reykjavík 2010 til 2030, sem nú er verið að leggja lokahönd á, er gert ráð fyrir að hlutfall þeirra sem fari einir í bíl á leið sinni um borgina fari úr því að vera 75% í 58%. Það mun draga úr umferðarálagi í borginni og um leið úr hávaðamengun og slysahættu.
En til að þetta markmið verði meira en orðin tóm, eins og stundum hefur gerst, þarf að fylgja stefnunni eftir. Annars verður Reykjavík áfram borg fyrir bíla. Óli Kristján telur það harkalegt og hæpið að láta stúdenta og starfsmenn Háskólans og Landspítalans borga fyrir öll bílastæðin sem þeir nota. Ég tel það bæði nauðsynlegt og sjálfsagt. Í dag fara 60% stúdenta við Háskóla Íslands einir á einkabíl í skólann.
Það á sinn þátt í mikilli umferð á Miklubraut. Það er fáránlegt. Hvað fyrirhugaða byggð í Vatnsmýrinni varðar má heita öruggt að í nýju aðalskipulagi verður staðið við fyrri áætlanir um að flugvöllurinn fari þaðan í tveimur áföngum árin 2016 og 2024.
Skoðun

Skynsamleg forgangsröðun fjár
Ragnhildur Jónsdóttir skrifar

Eins skýrt og það verður
Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar

Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson
Birgir Orri Ásgrímsson skrifar

Að sameinast fjölskyldu sinni
Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar

Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78
Snorri Másson skrifar

Eru forvarnir í hættu?
Dagbjört Harðardóttir skrifar

Tveir alþingismenn og Gaza
Sverrir Agnarsson skrifar

Hver borgar fyrir ódýrar lóðir?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Erum við að lengja dauðann en ekki lífið?
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu
Kristín Lára Ólafsdóttir skrifar

Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Verður það að vera Ísrael?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Dýravernd - frumbyggjahættir
Árni Stefán Árnason skrifar

Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota
Magnús Guðmundsson skrifar

Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi
Snorri Sturluson skrifar

Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu
Guðjón Sigurbjartsson skrifar

Sjómenn til hamingju!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Leyfum mennskunni að sigra
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Fjölskyldan fyrst
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Hvað er markaðsverð á fiski?
Sverrir Haraldsson skrifar

Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda
Anna Karen Svövudóttir skrifar

Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt
BIrgir Dýrfjörð skrifar

Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað?
Valentina Klaas skrifar

Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti
Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar

Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna
Berit Mueller skrifar

Þjóðarmorð – frá orðfræðilegu sjónarmiði
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi?
Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Þakkir til starfsfólk Janusar
Sigrún Ósk Bergmann skrifar

Mun gervigreindin senda konur heim?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar